
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Verkefnastjóri á menntadeild
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
70-80%
Starf skráð
20.04.2026
Umsóknarfrestur
15.05.2026
Verkefnastjóri á menntadeild
Landspítali óskar eftir að ráða öflugan og metnaðarfullan verkefnastjóra til starfa á menntadeild. Starfið felst í umsjón með færni- og hermisetri Landspítala og heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands.
Um er að ræða spennandi og fjölbreytt starf fyrir einstakling sem hefur áhuga á nýsköpun, skipulagi, þjónustu, tækni og teymisvinnu. Verkefnastjóri gegnir lykilhlutverki í daglegri starfsemi setursins og tekur þátt í áframhaldandi uppbyggingu þess.
Á menntadeild starfar öflugur hópur í nánu samstarfi við aðrar fagstéttir spítalans. Áhersla er lögð á öryggi sjúklinga, teymisvinnu, fagmennsku og nýsköpun. Starfshlutfall er 70-80% og er starfið laust samkvæmt samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Umsjón með starfsemi setursins
Umsjón með bókunum á húsnæði, búnaði o.fl.
Undirbúningur og frágangur vegna námskeiða
Innkaup og rekstur búnaðar
Tæknilegur stuðningur við starfsemi setursins
Samskipti við námskeiðsstjóra og aðra samstarfsaðila
Hæfniskröfur
Heilbrigðismenntun á háskólastigi
Mjög góð samskiptahæfni, jákvætt viðmót og þjónustulund
Skipulögð vinnubrögð og sjálfstæði í starfi
Frumkvæði og metnaður til að ná árangri
Sveigjanleiki og hæfni til að takast á við fjölbreytt verkefni
Góð tækni- og tölvukunnátta
Góð íslenskukunnátta
Þekking á starfsemi Landspítala er kostur
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá, kynningarbréf, afrit af prófskírteinum og starfsleyfi, eftir því sem við á. Fylgiskjöl skulu vera á PDF-formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklinga starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, verkefnastjóri,
Tungumálahæfni: Íslenska 4/5
Staðsetning: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík
Starfshlutfall er 70-80%
Umsóknarfrestur er til og með 15.05.2026
Nánari upplýsingar veitir
Hrund Scheving Thorsteinsson
Tölvupóstur: hrundsch@Landspitali.is

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Verkefnastjóri á menntadeild
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
70-80%
Starf skráð
20.04.2026
Umsóknarfrestur
15.05.2026