Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Háskólinn á Akureyri

Upplýsingar um starf

Starf

Sviðsstjóri fjármála og rekstrar

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

21.04.2026

Umsóknarfrestur

04.05.2026

Sviðsstjóri fjármála og rekstrar

Háskólinn á Akureyri leitar að öflugum og framsýnum sviðsstjóra í nýtt lykilstarf innan skólans. Starfið býður upp á einstakt tækifæri til að móta fjármála- og rekstrarsvið og hafa raunveruleg áhrif á starfsemi og framtíðarþróun háskólans.

Viðkomandi gegnir lykilhlutverki í stjórnendateymi rektors og vinnur náið með rektor og öðrum stjórnendum að stefnumótun, ákvarðanatöku og áframhaldandi uppbyggingu starfseminnar. Starfið felur í sér leiðtogahlutverk þar sem áhersla er lögð á umbætur, góð samskipti, gagnadrifna nálgun og árangursríkan rekstur.

Háskólinn á Akureyri er eftirsóknarverður vinnustaður þar sem ríkir jákvætt starfsumhverfi, öflug liðsheild og metnaður fyrir fagmennsku og þróun sem endurspeglast m.a. í góðum niðurstöðum í könnuninni Stofnun ársins.

Næsti yfirmaður er rektor Háskólans á Akureyri.

Starfsstöðin er á háskólasvæðinu á Akureyri.

Æskilegt er að viðkomandi getið hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Ber ábyrgð á og mótar fjármála- og rekstrarsvið háskólans með áherslu á árangur, gagnsæi og sjálfbæra þróun.

  • Leiðir og styður við teymi fjármála, greiningar og reksturs.

  • Leiðir fjárhagslega stefnumótun, áætlanagerð og eftirfylgni í nánu samstarfi við rektor og stjórnendateymi háskólans.

  • Tryggir áreiðanleika fjárhagsupplýsinga, öflugt innra eftirlit og gagnadrifna ákvarðanatöku.

  • Leiðir þróun og innleiðingu verkferla á sviði fjármála, gagnavinnslu og þjónustu.

  • Ber ábyrgð á rekstri og þróun fasteigna og innviða, þar á meðal viðhaldi, öryggis- og aðgengismálum.

  • Stýrir samningum við þjónustuaðila og stuðlar að skilvirkum rekstri.

Sviðsstjóri fjármála og rekstrar situr samráðsfundi rektors með forsetum fræðasviða og sviðsstjórum háskólans. Þau málefni sem heyra undir sviðsstjóra fjármála og reksturs eru fjármál og greining, fasteignir og mötuneyti.

Hæfniskröfur

  • Háskólapróf að lágmarki meistarastigi (eða sambærilegt) á viðeigandi sviði t.d. viðskiptafræði, hagfræði, rekstrarverkfræði).

  • Reynsla af fjármálastýringu, reikningshaldi og rekstri.

  • Farsæl reynsla af stjórnun og uppbyggingu teyma.

  • Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni og geta til að byggja upp traust og ná árangri í samstarfi við ólíka hagsmunaaðila.

  • Mjög góð tölvukunnátta, þar á meðal færni í Excel og greiningartækjum (t.d. Power BI).

  • Reynsla af gagnagreiningu og framsetningu stjórnunarupplýsinga.

  • Reynsla af samningastýringu og rekstri fasteigna og innviða er kostur.

  • Reynsla af launakerfum er kostur.

  • Reynsla af stefnumótun, innleiðingu og breytingarstjórnun.

  • Geta til að vinna sjálfstætt, forgangsraða og leiða umbætur með gagnadrifinni nálgun.

  • Mjög góð íslensku- og enskukunnátta.

Umsókn skal fylgja:

  • Greinargott yfirlit yfir náms- og starfsferil.

  • Staðfest afrit af viðeigandi prófskírteinum.

  • Kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda.

  • Nöfn að minnsta kosti tveggja meðmælenda.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara á Akureyri hafa gert.

  • Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í sex mánuði eftir að umsóknarfresti lýkur, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996. Háskólinn á Akureyri áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.

  • Háskólinn á Akureyri stuðlar að jafnrétti kynjanna og hvetur öll kyn til að sækja um laus störf.

  • Við ráðningu í störf við Háskólann á Akureyri er tekið mið af jafnréttisáætlun háskólans og tekið er tillit til þarfar einingarinnar við ráðningu.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 04.05.2026

Nánari upplýsingar veitir

Áslaug Ásgeirsdóttir

rektor

Tölvupóstur: rektor@unak.is

Þjónustuaðili

Háskólinn á Akureyri

Upplýsingar um starf

Starf

Sviðsstjóri fjármála og rekstrar

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

21.04.2026

Umsóknarfrestur

04.05.2026