Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Verkmennta­skóli Austur­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Kennari í rafiðngreinum

Staðsetning

Austurland

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

21.04.2026

Umsóknarfrestur

04.05.2026

Kennari í rafiðngreinum

Verkmenntaskóli Austurlands leitar að kennara í rafiðngreinum. Um er að ræða 100% stöðugildi. Starfið felst í undirbúningi, framkvæmd og úrvinnslu kennslu og námsmats í þeim áföngum sem viðkomandi er falið að kenna, þannig að markmiðum skólans sé fylgt. Einnig að fylgjast með að kennsla og námsefni uppfylli kröfur íslenskra laga og reglugerða sem gilda um rekstur framhaldsskóla sem og alþjóðlegar kröfur ef faggreinin veitir slík réttindi.

Verkmenntaskóli Austurlands er framsækinn framhaldsskóli. Skólinn býður upp á fjölbreytt bók- og verknám auk starfsbrautar. Heimavist og mötuneyti er starfrækt í skólanum. Í skólanum kennt í stað-, fjar-, helgar- og dreifnámi. Um 35 starfsmenn starfa við skólann og nemendur eru um 500. Skólinn hefur það að markmiði að bjóða upp á fjölbreytta kennsluhætti og námsmat m.a. með áherslu á leiðsagnarnám.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Kennsla, undirbúningur kennslu, framkvæmd námsmats og faglegt samstarf í kennslugreinum, skv. gæðakerfi og öðrum markmiðum skóla sem og markmiðum aðalnámskrár

  • Viðhalda faglegri hæfni sinni og huga að tengslum við aðrar námsgreinar

  • Þátttaka í þróunar- og umbótastarfi er lýtur að almennu skólastarfi og innan sinna greina

Hæfniskröfur

  • Meistararéttindi í rafiðngrein eða iðn-, tækni-, eða verkfræði á rafmagnssviði

  • Leyfisbréf sem kveður á um rétt til að nota starfsheitið kennari sbr. lög nr. 95/2019 um menntun, hæfni og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla

  • Mjög góð samskiptahæfni, ríkur samstarfsvilji og viðkomandi þarf að falla að þeim starfsmannahópi sem fyrir er í skólanum

  • Frumkvæði og góð skipulagshæfni

  • Áhugi á skólastarfi og vinnu með ungu fólki

  • Góð tölvukunnátta

  • Kennslureynsla og góð þekking á fjölbreyttum kennsluaðferðum æskileg

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kennarasamband Íslands hafa gert.

Áður en til ráðningar kemur þarf að liggja fyrir hreint sakavottorð. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:

  • Kynningarbréf þar sem fram kemur hvernig umsækjandi uppfyllir hæfniskröfur

  • Ferilskrá

  • Afrit af prófskírteinum og leyfisbréfi

  • Upplýsingar um umsagnaraðila sem hafa má samband við

Í ljósi jafnréttisáætlunar skólans eru einstaklingar af öllum kynjum hvattir til að sækja um störfin.

Á heimasíðu skólans, www.va.is eru upplýsingar um skólann og starfsemi hans. Skólinn starfar innan vottaðs gæðakerfis samkvæmt ISO-9001 staðli og vottaðs jafnlaunakerfis samkvæmt ÍST 85:2012 staðlinum.

Ath. starfið er með staðsetningu í Verkmenntaskóla Austurlands, Fjarðabyggð.

Ráðið verður í starfið frá 1. ágúst 2026.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 04.05.2026

Nánari upplýsingar veitir

Birgir Jónsson

Tölvupóstur: birgir@va.is

Sími: 4771620 og 8687556

Þjónustuaðili

Verkmennta­skóli Austur­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Kennari í rafiðngreinum

Staðsetning

Austurland

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

21.04.2026

Umsóknarfrestur

04.05.2026