
Þjónustuaðili
Verkmenntaskólinn á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Kennari á starfs-og sérnámsbraut
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
20.04.2026
Umsóknarfrestur
30.04.2026
Kennari á starfs-og sérnámsbraut
Verkmenntaskólinn á Akureyri auglýsir eftir metnaðarfullum kennara á starfs- og sérnámsbraut skólans. Um er að ræða 80-100% stöðu frá og með 1.ágúst 2026.
Leitað er að umsækjanda sem er fær í samskiptum, hefur áhuga á að vinna með ungu fólki og er tilbúinn til að taka þátt í þróun kennslu og náms. Kennslugreinar eru m.a. kjarnagreinar og áfangar á 1. hæfniþrepi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Kennslan er á starfsbraut og sérnámsbraut VMA. Viðkomandi þarf að vera tilbúinn að taka að sér fjölbreytta og einstaklingsmiðaða kennslu. Nemendur á starfsbraut og sérnámsbraut taka verklega og bóklega áfanga í samræmi við sín markmið.
Áhersla er lögð á teymisvinnu kennara og þar sem starfið felur í sér mikla samvinnu innan skólans er lögð áhersla á persónulega þætti umsækjanda svo sem sjálfstæð vinnubrögð, jákvætt viðmót, fjölhæfni, hæfileika í mannlegum samskiptum og samvinnu.
Kennari kennir og undirbýr kennslu, hefur faglegt samstarf og metur nám í kennslugrein sinni samkvæmt markmiðum aðal- og skólanámskrár, gerir námsáætlun, viðheldur faglegri hæfni sinni og hugar að tengslum við aðrar námsgreinar. Tekur þátt í samráði vegna starfs síns, ber ábyrgð á almennri upplýsingagjöf, situr fundi og vinnur önnur störf sem honum eru falin og samrýmast gildandi kjarasamningum, lögum og reglugerðum.
Kennari vinnur eftir vottuðu gæðakerfi VMA.
Hæfniskröfur
Umsækjandi skal hafa háskólamenntun sem nýtist í starfi auk kennsluréttinda. Aðrar hæfnikröfur eru:
Reynsla af kennslu ungmenna með fötlun eða fjölþætta námsörðugleika.
Þekking og reynsla á samskiptaforritum fyrir einstaklinga með fötlun og notkun stafrænna kennslulausna.
Reynsla og hæfni í notkun upplýsingatækni í námi og kennslu.
Reynsla af teymiskennslu.
Frumkvæði, sveigjanleiki, öguð vinnubrögð og jákvætt hugarfar. Mjög góð hæfni í samskiptum og ríkur samstarfsvilji.
Reynsla af foreldrasamstarfi og þróunar í skólastarfi kostur.
Leitað er að einstaklingum sem skora hátt á sviði samskipta, hafa áhuga á fjölbreyttri kennslu og falla vel að aðstæðum og þörfum skólans.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kennarasamband Íslands hafa gert.
Umsóknum skulu fylgja ýtarlegar upplýsingar um nám og starfsferil ásamt afriti af prófskírteinum og leyfisbréfum. Umsækjendur sendi jafnframt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og sýn viðkomandi á sjálfan sig sem kennara ásamt rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Í samræmi við jafnréttisáætlun skólans er áhugasamt fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um starfið. Umsækjendur þurfa að skila inn hreinu sakavottorði skv. lögum nr. 92/2008.
Einungis er tekið við umsóknum í gegnum umsóknarvef Starfatorgs. Áskilinn er réttur til að nýta auglýsinguna í 6 mánuði frá ráðningu.
Ákvörðun um ráðningu byggir á innsendum gögnum og viðtölum. Ráðið er í starfið frá 1. ágúst 2026. Kennslan fer fram í staðbundnu námi í dagskóla.
Verkmenntaskólinn á Akureyri er með ISO-9001 gæðavottun. Nánari upplýsingar um skólann eru á heimasíðu hans vma.is.
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 30.04.2026
Nánari upplýsingar veitir
Sigrún Kristín Jónsdóttir
sviðstjóri starfs-og sérnámsbrauta
Tölvupóstur: sigrun.jonsdottir@vma.is
Sími: 464-0300

Þjónustuaðili
Verkmenntaskólinn á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Kennari á starfs-og sérnámsbraut
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
20.04.2026
Umsóknarfrestur
30.04.2026