
Þjónustuaðili
Framhaldsskólinn á Laugum
Upplýsingar um starf
Starf
Umsjónarmaður fasteigna FL
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
21.04.2026
Umsóknarfrestur
04.05.2026
Umsjónarmaður fasteigna FL
Laust er til umsóknar starf umsjónarmanns fasteigna við Framhaldsskólann á Laugum. Um 100% starf er að ræða.
Helstu verkefni og ábyrgð
er hluti af skólasamfélaginu á Laugum
vinnur með starfsmönnum og nemendum að viðburðum og verkefnum þeim tengdum
hefur umsjón með öllum byggingum skólans og öðrum eignum
skipuleggur og gerir tillögur um viðhald og breytingar á húsnæði í samráði við skólameistara og Framkvæmdasýsluna - Ríkiseignir
annast minniháttar viðhald og viðgerðir - sér um innkaup á viðhaldsvörum
annast og skipuleggur snjómokstur og umhirðu á lóð skólans
er yfirmaður ræstitækna, hefur yfirumsjón með ræstingum og sér um innkaup vegna þeirra
sinnir útköllum utan vinnutíma ef með þarf
fer í sendiferðir (þarf að hafa bíl til umráða)
hefur yfirumsjón með sorpmálum skólans
annast önnur verkefni sem honum eru falin og samkomulag er um
ber ábyrgð á að verkefni sem undir hann falla séu unnin samviskusamlega og innan settra tímamarka
Hæfniskröfur
Sjálfstæð vinnubrögð og röggsemi
Skipulagshæfileikar
Frumkvæði og eftirfylgni með verkefnum
Hæfni í mannlegum samskiptum
Rík þjónustulund og áhugi á að starfa með ungu fólki
Almenn tölvukunnátta
Bílpróf
Vilji og geta til að takast á við margvísleg verkefni, þróunarvinnu og framsækni í skólastarfi
Heilsuhreysti
Iðnmenntun og/eða reynsla af viðhaldsvinnu húsnæðis
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.
Umsóknum skulu fylgja upplýsingar um náms- og starfsferil ásamt afriti af prófskírteinum sem og sakavottorð. Kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar er æskilegt. Ráðið er í stöðuna frá 20. ágúst 2026, þó er hægt að byrja fyrr eða örlítið síðar. Allt fólk er hvatt til þess að sækja um starfið. Umsóknir gilda í 6 mánuði eftir að umsóknarfresti lýkur. Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 04.05.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Framhaldsskólinn á Laugum
Upplýsingar um starf
Starf
Umsjónarmaður fasteigna FL
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
21.04.2026
Umsóknarfrestur
04.05.2026