
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur á heilsugæslu- HSN Sauðárkrókur
Staðsetning
Norðurland vestra
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
20.04.2026
Umsóknarfrestur
30.04.2026
Hjúkrunarfræðingur á heilsugæslu- HSN Sauðárkrókur
Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) á Sauðárkróki óskar eftir að ráða metnaðarfullan og jákvæðan hjúkrunarfræðing til starfa á heilsugæslu. Starfið býður upp á fjölbreytt verkefni og tækifæri til starfsþróunar í hlýlegu og uppbyggilegu umhverfi. Starfshlutfall er 80-100%. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst og í síðasta lagi 1. september 2026. Verkefni ráðast af áhuga og hæfni viðkomandi og geta m.a verið á eftirfarandi sviðum:
Skólahjúkrun
Ungbarnavernd
Heimahjúkrun
Önnur störf sem tilheyra heilsugæslu
Hjá Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Sauðárkróki starfar öflugur hópur starfsfólks þar sem áhersla er lögð á vellíðan á vinnustað, teymisvinnu og tækifæri til vaxta og starfsþróunar.
Sauðárkrókur er blómlegt og fjölskylduvænt samfélag. Leik-, grunn- og framhaldsskóli er á svæðinu ásamt allri helstu þjónustu. Íþrótta- og menningarlíf er sterkt og fjölbreytt tækifæri er til útivistar og náttúrupplifana.
Húsnæðisaðstoð er í boði ef þess er óskað.
Helstu verkefni og ábyrgð
Almenn hjúkrun og umönnun
Stuðningur, ráðgjöf og hjúkrunarmeðferð
Þátttaka í teymisvinnu, umbótaverkefnum og að vinna að góðri liðsheild
Samstarf við aðra faghópa innan stofnunarinnar
Önnur tilfallandi verkefni skv. beiðni stjórnanda og skv. lögum og reglugerðum
Hæfniskröfur
Fullgilt hjúkrunarpróf og íslenskt starfsleyfi
Reynsla sem nýtist í starfi er kostur
Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
Skipulagshæfni og öguð vinnubrögð
Íslenskukunnátta skilyrði
Frábær samskiptahæfni, jákvæðni og sveigjanleiki
Reynsla og/eða áhugi á teymisstarfi
Faglegur metnaður og lausnamiðun
Gott orðspor og hreint sakavottorð
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Með umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá auk kynningarbréfs á íslensku þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið. Með umsókn skal einnig fylgja afrit af starfsleyfi og prófskírteini.
Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því umsóknarfrestur rennur út.
HSN vill vera framsækin stofnun, eftirsóknarverður vinnustaður og í fararbroddi í heilbrigðisþjónustu og heilbrigðismenntun á landsbyggðinni. Hlutverk HSN er meðal annars að stuðla að heilbrigði íbúanna með því að veita faglega, samfellda og heildstæða heilbrigðisþjónustu.
Gildi okkar eru Fagmennska - Samvinna - Virðing
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 30.04.2026
Nánari upplýsingar veitir
Sigurbjörg Kristr Snjólfsdóttir
yfirhjúkrunarfræðingur svæðis
Tölvupóstur: sigurbjorg.kristrun.snjolfsdottir@hsn.is
Sími: 432 4220

Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur á heilsugæslu- HSN Sauðárkrókur
Staðsetning
Norðurland vestra
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
20.04.2026
Umsóknarfrestur
30.04.2026