Þjónustuaðili
Sjúkrahúsið á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Sjúkraliði á lyflækningadeild Sjúkrahússins á Akureyri
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
70-100%
Starf skráð
20.04.2026
Umsóknarfrestur
04.05.2026
Sjúkraliði á lyflækningadeild Sjúkrahússins á Akureyri
Sjúkraliði óskast til starfa á lyflækningadeild Sjúkrahússins á Akureyri. Um er að ræða 70-100% ótímabundna stöðu í vaktavinnu þar sem unnið er á þrískiptum vöktum í fjölbreyttu og lærdómsríku starfsumhverfi. Sækjum eftir bæði reynsluboltum sem og nýútskrifuðum.
Á deildinni er lögð áhersla á þverfaglega samvinnu og býður starfið upp á góð tækifæri til að þróa með sér mikla faglega þekkingu og hæfni í sjálfstæðum vinnubrögðum. Við tökum vel á móti nýju starfsfólki og veitum góða einstaklingshæfða aðlögun.
Staðan er laus nú þegar eða eftir nánara samkomulagi.
Komdu og vertu hluti af öflugu teymi á Sjúkrahúsinu á Akureyri!
Helstu verkefni og ábyrgð
Í starfinu felst ábyrgð á öllum almennum verkefnum sjúkraliða samkvæmt lögum og reglugerðum. Einnig að unnið sé samkvæmt markmiðum hjúkrunar, deildarinnar og stofnunarinnar.
Hæfniskröfur
Sjúkraliði skal hafa lokið sjúkraliðanámi frá viðurkenndri menntastofnun og hafa gilt starfsleyfi
Faglegur metnaður og ábyrgð í starfi
Góð samskiptahæfni og jákvætt viðmót
Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
Hæfni og geta til að starfa í teymi
Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert.
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Sjúkrahússins á Akureyri við ráðningar í störf á sjúkrahúsinu. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum. Öllum umsóknum verður svarað.
Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi þar sem áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.
Samkvæmt mannauðsstefnu Sjúkrahússins á Akureyri er lögð áhersla á að ráða til starfa og halda í hæfileikaríka einstaklinga. Við val á starfsfólki er menntun, reynsla, færni og hæfni höfð að leiðarljósi. Mannauðsstefnan er leiðarljós stjórnenda og starfsfólks sem gerir sjúkrahúsið framsækinn og eftirsóknarverðan vinnustað, en hún byggir á grunngildum sjúkrahússins sem eru: ÖRYGGI, SAMVINNA og FRAMSÆKNI.
Starfshlutfall er 70-100%
Umsóknarfrestur er til og með 04.05.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þjónustuaðili
Sjúkrahúsið á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Sjúkraliði á lyflækningadeild Sjúkrahússins á Akureyri
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
70-100%
Starf skráð
20.04.2026
Umsóknarfrestur
04.05.2026