Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Verkmennta­skóli Austur­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Þroska- eða iðjuþjálfi

Staðsetning

Austurland

Starfshlutfall

75-100%

Starf skráð

20.04.2026

Umsóknarfrestur

30.04.2026

Þroska- eða iðjuþjálfi

Verkmenntaskóli Austurlands leitar að þroskaþjálfa eða iðjuþjálfa á starfsbraut skólans. Um er að ræða 75-100% stöðugildi. Starfið felst í þjálfun þeirra nemenda, sem honum er falið, þannig að hann fylgi markmiðum VA. Er samstarfsaðili kennara og annarra starfsmanna skólans eftir því sem við á. Mikilvægt er að þroskaþjálfi/iðjuþjálfi og kennari/kennarar starfi náið saman og gæti þess að verkaskipting þjóni sem best öllum nemendum. Fylgist með að kennsla og námsefni uppfylli kröfur íslenskra laga og reglugerða sem gilda um rekstur framhaldsskóla.

Verkmenntaskóli Austurlands er framsækinn framhaldsskóli. Skólinn býður upp á fjölbreytt bók- og verknám auk starfsbrautar. Heimavist og mötuneyti er starfrækt í skólanum. Í skólanum kennt í stað-, fjar-, helgar- og dreifnámi. Um 35 starfsmenn starfa við skólann og nemendur eru um 500. Skólinn hefur það að markmiði að bjóða upp á fjölbreytta kennsluhætti og námsmat m.a. með áherslu á leiðsagnarnám.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Annast þjálfun þeirra nemenda sem honum er falið hverju sinni.

  • Annast eftir atvikum færni- og/eða þroskamat fyrir þá nemendur sem honum er falið hverju sinni.

  • Annast upplýsingagjöf og upplýsingaöflun vegna sérþarfa nemenda sinna. Annast almenna upplýsingagjöf og upplýsingagjöf vegna sjálfsmats skóla og skólanámskrár.

  • Skipuleggur þjálfunaraðstæður, velur/útbýr þjálfunar- og námsgögn og fylgir eftir settum markmiðum. Metur árangur og endurskoðar markmið í samstarfi við samstarfsaðila. Skilar niðurstöðum til næsta yfirmanns og foreldra.

  • Þátttaka í þróunar- og umbótastarfi er lýtur að almennu skólastarfi.

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun í þroskaþjálfun eða iðjuþjálfun ásamt starfsréttindum.

  • Starfsreynsla í faginu skilyrði.

  • Mjög góð samskiptahæfni, ríkur samstarfsvilji og viðkomandi þarf að falla að þeim starfsmannahópi sem fyrir er í skólanum

  • Frumkvæði og góð skipulagshæfni

  • Áhugi á skólastarfi og vinnu með ungu fólki

  • Góð tölvukunnátta

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Þroskaþjálfafélag Íslands hafa gert.

Áður en til ráðningar kemur þarf að liggja fyrir hreint sakavottorð. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:

  • Kynningarbréf þar sem fram kemur hvernig umsækjandi uppfyllir hæfniskröfur

  • Ferilskrá

  • Afrit af prófskírteinum og leyfisbréfi

  • Upplýsingar um umsagnaraðila sem hafa má samband við

Í ljósi jafnréttisáætlunar skólans eru einstaklingar af öllum kynjum hvattir til að sækja um störfin.

Á heimasíðu skólans, www.va.is eru upplýsingar um skólann og starfsemi hans. Skólinn starfar innan vottaðs gæðakerfis samkvæmt ISO-9001 staðli og vottaðs jafnlaunakerfis samkvæmt ÍST 85:2012 staðlinum.

Ath. starfið er með staðsetningu í Verkmenntaskóla Austurlands, Fjarðabyggð.

Ráðið verður í starfið frá 1. ágúst 2026.

Starfshlutfall er 75-100%

Umsóknarfrestur er til og með 30.04.2026

Nánari upplýsingar veitir

Birgir Jónsson

skólameistari

Tölvupóstur: birgir@va.is

Sími: 8687556 og 4771620

Þjónustuaðili

Verkmennta­skóli Austur­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Þroska- eða iðjuþjálfi

Staðsetning

Austurland

Starfshlutfall

75-100%

Starf skráð

20.04.2026

Umsóknarfrestur

30.04.2026