Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Mennta­skólinn við Sund

Upplýsingar um starf

Starf

Óskar eftir kennara í viðskiptagreinum, frumkvöðlafræði og nýsköpun

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

17.04.2026

Umsóknarfrestur

27.04.2026

Óskar eftir kennara í viðskiptagreinum, frumkvöðlafræði og nýsköpun

Menntaskólinn við Sund auglýsir eftir kennara í viðskiptagreinum, frumkvöðlafræði og nýsköpun. MS er framsækinn skóli með 3ja anna kerfi. Í skólanum er lögð áhersla á umhverfismál, listir og nýsköpun auk vinnu í anda leiðsagnarnáms og uppbyggingu námskrafts nemenda. Öflug starfsþróun starfsmanna er einn af áhersluþáttum í starfi skólans þar sem byggt hefur verið upp kraftmikið erlent samstarf og starfendarannsóknir.

Helstu verkefni og ábyrgð

Kennsla, undirbúningur og námsmat, faglegt samstarf og starfsþróun.Önnur störf samkvæmt starfslýsingu.

Hæfniskröfur

  • Umsækjandi uppfylli kröfur um menntun og hæfni kennara í samræmi við lög nr. 95/2019

  • Kennsluréttindi

  • Háskólagráða í viðskiptagreinum ásamt menntun eða reynslu í frumkvöðlafræðum

  • Skýr sýn hvað varðar starfskenningu og fagmennsku

  • Frumkvæði, lausnamiðað og jákvætt hugarfar

  • Reynsla og áhugi á að starfa með ungmennum

  • Hæfni til að vinna í anda leiðsagnarnáms

  • Framúrskarandi samskiptahæfni

  • Góð kunnátta í íslensku og notkun upplýsingatækni

  • Hæfni til kennslu fleiri faggreina er kostur

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kennarasamband Íslands hafa gert.

Ráðið í stöðuna frá 1. ágúst 2026. Starfskjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og Kennarasambands Íslands skv. nánari útfærslu í stofnanasamningi Menntaskólans við Sund. Öllum umsóknum verður svarað.

Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:

  • Kynningarbréf þar sem greint er frá starfskenningu umsækjanda

  • Náms- og starfsferilsskrá

  • Afrit af prófskírteinum

  • Afrit af leyfisbréfi kennara

  • Upplýsingar um umsagnaraðila sem hafa má samband við

Tekið er mið af jafnréttisáætlun MS við ráðningar í störf við skólann og eru öll kyn hvött til að sækja um starfið.

Á heimasíðu skólans http://www.msund.is er að finna ýmsar upplýsingar um skólann, stefnu hans og starfsemi.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 27.04.2026

Nánari upplýsingar veitir

Helga Sigríður Þórsdóttir

rektor

Tölvupóstur: helgath@msund.is

Leifur Ingi Vilmundarson

konrektor

Tölvupóstur: leifuriv@msund.is

Þjónustuaðili

Mennta­skólinn við Sund

Upplýsingar um starf

Starf

Óskar eftir kennara í viðskiptagreinum, frumkvöðlafræði og nýsköpun

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

17.04.2026

Umsóknarfrestur

27.04.2026