Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Lögreglu­stjórinn á Norður­landi eystra

Upplýsingar um starf

Starf

Sumarafleysingar - lögreglumenn - Húsavík - Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

17.04.2026

Umsóknarfrestur

05.05.2026

Sumarafleysingar - lögreglumenn - Húsavík - Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra

Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra auglýsir lausar til umsóknar stöður lögreglumanna við sumarafleysingar á starfsstöð embættisins á Húsavík. Gert er ráð fyrir að lögreglustjóri setji í stöðurnar frá og með 1. júní 2026.

Framtíðarsýn embættis Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra er framsækið embætti fyrir vaxandi samfélag.

Helstu verkefni og ábyrgð

Í samræmi við reglugerð nr. 1051/2006 um starfstig innan lögreglu; m.a. halda uppi lögum og reglu í samræmi við lög, reglur og fyrirmæli, tryggja réttaröryggi borgara með störfum sínum og framkomu, greiða götu þeirra eftir því sem við á og aðstoða þegar hætta steðjar að eða slys ber að höndum, sinna verkum sem lögreglustjóri felur honum s.s. á sviði forvarna og annars.

Hæfniskröfur

Umsækjendur skulu hafa lokið prófi frá Lögregluskóla ríkisins eða diplómanámi í lögreglufræðum sem jafngildir a.m.k. 120 stöðluðum námseiningum, þ.m.t. starfsnámi á vegum lögreglunnar. Þó er heimilt að ráða ófagmenntað fólk til tímabundinna afleysingastarfa ef ekki sækja um fagmenntaðir einstaklingar. Þeir sem ekki hafa áður starfað í lögreglu verða að vera reiðubúnir að sitja nýliðanámskeið sem haldið verður í lok maí 2026 og standast bakgrunnsskoðun, þrekpróf og læknisskoðun.

  • Reynsla af starfi við löggæslu er kostur

  • Viðkomandi þarf að vera orðinn 20 ára

  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og hæfni til að starfa í hóp

  • Frumkvæði og sjálfstæði

  • Lausnamiðað og jákvætt viðhorf

  • Skipulagshæfni og nákvæm vinnubrögð

  • Góð íslensku- og enskukunnátta

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Landssamband lögreglumanna hafa gert.

Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir um að sækja um starfið með rafrænum hætti í gegnum Starfatorg, https://island.is/starfatorg og láta ferilskrá og kynningarbréf fylgja með sem viðhengi.

Umsóknir sem berast að umsóknarfresti liðnum verða ekki teknar til greina. Öllum umsækjendum verður svarað þegar ákvörðun um setningu liggur fyrir.

Um vaktavinnu er að ræða með bakvaktaskyldu og búseta á staðnum því nauðsynleg á meðan á bakvöktum stendur.

Vakin er athygli á að engan má skipa, setja eða ráða til starfa hjá lögreglu sem hlotið hefur fangelsisdóm fyrir refsiverðan verknað sem framinn var eftir að viðkomandi varð fullra 18 ára eða sýnt af sér háttsemi sem getur rýrt það traust sem starfsmenn lögreglu verða almennt að njóta. Til þess að staðreyna þetta er lögreglu heimilt að afla upplýsinga úr sakaskrá eða málaskrá lögreglu, sbr. 28. gr. a. lögreglulaga nr. 90/1996.

Lögreglustjóri leggur áherslu á jafnrétti og hvetur fólk af öllum kynjum til að sækja um.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 05.05.2026

Nánari upplýsingar veitir

Bergur Jónsson

yfirlögregluþjónn

Tölvupóstur: bergur.jonsson@logreglan.is

Sími: 4442800

Hjalti Bergmar Axelsson

aðstoðaryfirlögregluþjónn

Tölvupóstur: hjaltiberg@logreglan.is

Sími: 4442800

Þjónustuaðili

Lögreglu­stjórinn á Norður­landi eystra

Upplýsingar um starf

Starf

Sumarafleysingar - lögreglumenn - Húsavík - Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

17.04.2026

Umsóknarfrestur

05.05.2026