Þjónustuaðili
Sjúkrahúsið á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Gjaldkeri á skrifstofu fjármála - Sjúkrahúsið á Akureyri
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
17.04.2026
Umsóknarfrestur
27.04.2026
Gjaldkeri á skrifstofu fjármála - Sjúkrahúsið á Akureyri
Laust er til umsóknar starf gjaldkera á skrifstofu fjármála við Sjúkrahúsið á Akureyri. Um er að ræða 100% stöðu og er staðan laus frá 1.maí n.k. eða samkvæmt samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Greiðsla reikninga
Greiðsluáætlanir
Greiðsla erlendra reikninga
Samskipti við innlenda og erlenda aðila
Móttaka bókunarbeiðna og greiðsla ferðakostnaðar
Samskipti og reikningagerð vegna ósjúkratryggðra
Þáttaka í bakvöktum
Umsjón með Gjafasjóði SAk og Hollvina SAk
Afstemmingar
Hæfniskröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi
Reynsla af sambærilegu starfi er kostur
Þekking á fjárhagshluta Oracle-kerfisins er kostur
Þekking á þjónustutengdri fjármögnun (DRG) er kostur
Góð tölvukunnátta
Góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í ræðu og riti
Skipulagshæfileikar, sjálfstæði og nákvæmni í vinnubrögðum
Hæfni í mannlegum samskiptum og góð þjónustulund
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Sjúkrahússins á Akureyri við ráðningar í störf á sjúkrahúsinu. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum. Öllum umsóknum verður svarað.
Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi þar sem áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.
Samkvæmt mannauðsstefnu Sjúkrahússins á Akureyri er lögð áhersla á að ráða til starfa og halda í hæfileikaríka einstaklinga. Við val á starfsfólki er menntun, reynsla, færni og hæfni höfð að leiðarljósi. Mannauðsstefnan er leiðarljós stjórnenda og starfsfólks sem gerir sjúkrahúsið framsækinn og eftirsóknarverðan vinnustað, en hún byggir á grunngildum sjúkrahússins sem eru: ÖRYGGI, SAMVINNA og FRAMSÆKNI.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 27.04.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þjónustuaðili
Sjúkrahúsið á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Gjaldkeri á skrifstofu fjármála - Sjúkrahúsið á Akureyri
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
17.04.2026
Umsóknarfrestur
27.04.2026