Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Sýslu­mað­urinn á Suður­nesjum

Upplýsingar um starf

Starf

Löglærður fulltrúi

Staðsetning

Suðurnes

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

17.04.2026

Umsóknarfrestur

30.04.2026

Löglærður fulltrúi

SÝSLUMAÐURINN Á SUÐURNESJUM

auglýsir lausa til umsóknar stöðu löglærðs fulltrúa á skrifstofu embættisins í Reykjanesbæ. Um er að ræða fullt starf. Umsækjendur þurfa að geta hafið störf sem fyrst.

Embætti sýslumannsins á Suðurnesjum er framsækin stjórnsýslu- og þjónustustofnun. Áherslur vinnustaðarins byggja á góðri og faglegri þjónustu, skilvirku verklagi og öflugri liðsheild. Athygli er vakin á að sýslumannsembætti landsins munu sameinast í eitt um næstu áramót og að þáverandi starfsfólk mun flytjast yfir til nýs embættis.

Við ráðningu verður tekið mið af jafnréttisáætlun embættisins og horft verður til þess að umsækjendur falli sem best inn í hópinn og að þörfum embættisins.

Helstu verkefni og ábyrgð

Starfið er áhugavert og krefjandi og felur í sér úrlausn lögfræðilegra verkefna, einkum á sviði þinglýsinga og fjölskyldumála, auk annarra tilfallandi verkefna.

Hæfniskröfur

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Embættis- eða meistarapróf í lögfræði.

  • Þekking á verkefnum sýslumanna er áskilin og reynsla af ofangreindum málaflokkum er kostur.

  • Reynsla af skrifstofu- og þjónustustörfum er kostur.

  • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi, þ.á m. geta til að vinna sjálfstætt að greiningu og úrlausn lögfræðilegra álitaefna.

  • Góð tölvukunnátta og hæfni til að tileinka sér tækninýjungar.

  • Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti og gott vald á ensku.

  • Frumkvæði, forystuhæfileikar og áhugi fyrir nýsköpun í starfi.

  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum, jákvætt viðmót og þjónustulund.

  • Stundvísi, auga fyrir smáatriðum, öguð og skilvirk vinnubrögð.

  • Sveigjanleiki og lausnamiðuð nálgun.

  • Góð tímastjórnun, geti unnið undir álagi og forgangsraðað verkefnum.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Stéttarfélag lögfræðinga hafa gert.

Laun greiðast samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs og stéttarfélags lögfræðinga. Um starfskjör, réttindi og skyldur gilda að öðru leyti lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.

Sótt er um störfin á Starfatorgi og er umsóknarfrestur til og með 30. apríl 2026.

Umsóknum skulu fylgja upplýsingar um menntun og starfsferil ásamt prófskírteinum og kynningarbréfi, þar sem umsækjandi rökstyður hæfni sína til að gegna starfinu.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 30.04.2026

Nánari upplýsingar veitir

Ásdís Ármannsdóttir

Sýslumaður

Tölvupóstur: sudurnes@syslumenn.is

Sími: 4582200

Þjónustuaðili

Sýslu­mað­urinn á Suður­nesjum

Upplýsingar um starf

Starf

Löglærður fulltrúi

Staðsetning

Suðurnes

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

17.04.2026

Umsóknarfrestur

30.04.2026