Þjónustuaðili
Sjúkrahúsið á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Bókari á skrifstofu fjármála - Sjúkrahúsið á Akureyri.
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
-100%
Starf skráð
17.04.2026
Umsóknarfrestur
27.04.2026
Bókari á skrifstofu fjármála - Sjúkrahúsið á Akureyri.
Sjúkrahúsið á Akureyri auglýsir starf bókara á skrifstofu fjármála. Um er að ræða 100% stöðu og er staðan laus 1. maí n.k eða samkvæmt samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Móttaka og bókun reikninga.
Umsjón með ferðauppgjörskerfi.
Afstemmingar.
Hæfniskröfur
Menntun sem nýtist í starfi t.d. viðurkenndur bókari eða sambærilegt
Góð bókhaldsþekking
Góð tölvukunnátta,
þekking á fjárhagshluta Oracle-kerfis er kostur
Reynsla af sambærilegu starfi er kostur
Skipulagshæfileikar og nákvæmni í vinnubrögðum.
Hæfni í mannlegum samskiptum og miðlun upplýsinga.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Sjúkrahússins á Akureyri við ráðningar í störf á sjúkrahúsinu. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum. Öllum umsóknum verður svarað.
Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi þar sem áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.
Samkvæmt mannauðsstefnu Sjúkrahússins á Akureyri er lögð áhersla á að ráða til starfa og halda í hæfileikaríka einstaklinga. Við val á starfsfólki er menntun, reynsla, færni og hæfni höfð að leiðarljósi. Mannauðsstefnan er leiðarljós stjórnenda og starfsfólks sem gerir sjúkrahúsið framsækinn og eftirsóknarverðan vinnustað, en hún byggir á grunngildum sjúkrahússins sem eru: ÖRYGGI, SAMVINNA og FRAMSÆKNI.
Starfshlutfall er -100%
Umsóknarfrestur er til og með 27.04.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þjónustuaðili
Sjúkrahúsið á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Bókari á skrifstofu fjármála - Sjúkrahúsið á Akureyri.
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
-100%
Starf skráð
17.04.2026
Umsóknarfrestur
27.04.2026