
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Vesturlands
Upplýsingar um starf
Starf
Sumarafleysing 2026. Sjúkraliði á hjúkrunarheimili HVE Hvammstanga
Staðsetning
Vesturland
Starfshlutfall
50-90%
Starf skráð
17.04.2026
Umsóknarfrestur
27.04.2026
Sumarafleysing 2026. Sjúkraliði á hjúkrunarheimili HVE Hvammstanga
Heilbrigðisstofnun Vesturlands (HVE), hjúkrunarheimili Hvammstanga óskar eftir að ráða sjúkraliða í sumarafleysingar 2026.
Starfshlutfall er 50-90% og er ákveðið með deildarstjóra.
Um er að ræða þrískipta vaktavinnu.
Helstu verkefni og ábyrgð
Sjúkraliði ber ábyrgð á að veita skjólstæðingum sínum umönnun og hjúkrun í samræmi við markmið og stefnu hjúkrunar hjá stofnuninni.
Sjúkraliði ber ábyrgð á störfum sínum í samræmi við lög nr. 34/2012 um heilbrigðisstarfsmenn og reglugerð nr. 511/2013 um menntun, réttindi og skyldur sjúkraliða og skilyrði til að hljóta starfsleyfi. Sjúkraliða og almennum starfsmanni ber að fylgja faglegum fyrirmælum næsta yfirmanns, og sinna störfum sínum af árvekni, trúmennsku og virðingu í samræmi við faglegar kröfur sem gerðar eru til starfsins á hverjum tíma.
Staðan felur í sér aðhlynningu á hjúkrunarheimilinu
Hæfniskröfur
Gerð er krafa um
Íslenskt sjúkraliðaleyfi.
Góða íslensku kunnáttu.
Góða hæfni í mannlegum samskiptum.
Stundvísi, sjálfstæð vinnubrögð og faglegan metnað.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert.
Með umsókn skal fylgja staðfest afrit af sjúkraliðaleyfi og námsmat frá SLFÍ ef við á.
Sótt er um á starfatorg.is
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Starfshlutfall er 50-90%
Umsóknarfrestur er til og með 27.04.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Vesturlands
Upplýsingar um starf
Starf
Sumarafleysing 2026. Sjúkraliði á hjúkrunarheimili HVE Hvammstanga
Staðsetning
Vesturland
Starfshlutfall
50-90%
Starf skráð
17.04.2026
Umsóknarfrestur
27.04.2026