Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Rannís

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðingur í rannsóknateymi

Staðsetning

Óstaðbundið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

16.04.2026

Umsóknarfrestur

27.04.2026

Sérfræðingur í rannsóknateymi

Sérfræðingur óskast í fullt starf hjá Rannís. Starfið felur í sér umsjón með allt að þremur fagráðum Rannsóknasjóðs; auk umsjónar með öðrum innlendum sjóðum og alþjóðlegum verkefnum.

Helstu verkefni og ábyrgð

Umsjón með fagráðum Rannsóknasjóðs felur í sér skipulagningu á vinnu fagráða við mat á umsóknum og undirbúning að ákvörðunum stjórnar sjóðsins um úthlutun. Allar umsóknir eru á ensku og matsferlið einnig, þar sem allir matsmenn starfa utan Íslands. Auk þess er umsjón með öðrum innlendum sjóðum teymisins. Alþjóðleg verkefni fela meðal annars í sér þátttöku í norrænu og evrópsku samstarfi sambærilegra stofnana sem samfjármagna alþjóðleg rannsóknarverkefni og kynningu á alþjóðlegum tækifærum fyrir íslenska aðila. Starfið felur í sér mikil samskipti við umsækjendur og styrkþega og við innlenda og erlenda samstarfsaðila.

Hæfniskröfur

  • Meistarapróf sem nýtist í starfi er áskilið en doktorspróf er kostur

  • Reynsla af rannsóknum, styrkjaskrifum og rekstri rannsóknaverkefna er skilyrði

  • Mjög góð hæfni í greiningu og lausn vandamála er skilyrði

  • Mjög góð kunnátta í íslensku og ensku bæði tal- og ritmáli er skilyrði

  • Góð kunnátta í Norðurlandamáli er kostur

  • Mjög góð færni í töflureikni er skilyrði ásamt færni í helstu Office forritum eða sambærilegu

  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð ásamt góðri samskiptafærni

  • Unnið er í þéttu teymi og reynsla af slíku fyrirkomulagi er áskilin

  • Metnaður til að ná árangri í starfi með því að sýna vönduð vinnubrögð, frumkvæði, sveigjanleika og veita góða þjónustu

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Umsóknarfrestur er til og með 27. apríl 2026.

Umsækjendur eru beðnir um að kynna sér sérstaklega starfsemi Rannsóknasjóðs, sjá handbók sjóðsins fyrir 2026.

Umsókn skal fylgja ferilskrá, kynningarbréf og prófskírteini.

Við ráðningu í starfið er tekið mið af jafnréttisáætlun Rannís og er fólk af öllum kynjum hvatt tl að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun hefur verið tekin um ráðningu.

Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. reglur nr. 464/1996 um auglýsingar á lausum störfum, með síðari breytingum.

Rannís er líflegur vinnustaður með um 70 sérfræðingum sem starfa eftir gildum stofnunarinnar: Áhrif, fagmennska og samstarf. Hlutverk Rannís er að treysta stoðir íslensks samfélags með stuðningi við rannsóknir, nýsköpun, menntun og menningu og styðja þekkingarsamfélagið með rekstri samkeppnissjóða, aðstoð og kynningu á alþjóðlegum sóknarfærum og samstarfsmöguleikum. Rannís greinir og kynnir áhrif rannsókna, menntunar og menningar á þjóðarhag og þjónustar undirbúning vísinda- og tæknistefnu.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 27.04.2026

Nánari upplýsingar veitir

Sigurður Óli Sigurðsson

sviðsstjóri rannsókna- og nýsköpunarsviðs

Tölvupóstur: sigurdur.o.sigurdsson@rannis.is

Sími: 515 5802

Þjónustuaðili

Rannís

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðingur í rannsóknateymi

Staðsetning

Óstaðbundið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

16.04.2026

Umsóknarfrestur

27.04.2026