Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Suður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Sálfræðingur óskast til starfa á HSU

Staðsetning

Óstaðbundið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

17.04.2026

Umsóknarfrestur

27.04.2026

Sálfræðingur óskast til starfa á HSU

Heilbrigðisstofnun Suðurlands óskar eftir að ráða sálfræðing til starfa.

Starfshlutfall er fullt en annað kemur til greina, megin starfsstöð er á Selfossi. Um er að ræða afleysingarstöðu til eins árs vegna fæðingarorlofs með möguleika á ráðningu til lengri tíma.

Sálfræðiteymi HSU er þverfaglegt og sinnir fjölbreyttri þjónustu í bæði barna- og fullorðinsteymi. Teymið tekur virkan þátt í þróunarverkefnum bæði í fullorðins- og barnaþjónustu þar sem góð tækifæri eru til starfsþróunar og handleiðslu.

Ráðið verður í starfið frá 15. maí n.k. eða eftir nánara samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Sálfræðiteymi HSU veitir þjónustu bæði í barna- og fullorðinsteymi. Sérstaklega er óskað eftir sálfræðingi í barnateymi en staða í fullorðinsteymi kemur einnig til greina.

  • Helstu verkefni eru greining á geðvanda, sálfræðimeðferð og ráðgjöf við vægum til miðlungs klínískum vanda. Sálfræðiteymi HSU er þátttakandi í þróunarverkefnum á borð við Flikk (Hjálp fyrir kvíðin börn) og ÞÁS (þrepaskipt, árangursmæld sálfræðiþjónusta) sem gefur tækifæri á ríkri þjálfun, endurmenntun og handleiðslu sérfræðinga.

  • Þátttaka í fjölbreyttri teymisvinnu innan og utan stofnunar.

Hæfniskröfur

  • Starfsleyfi landlæknis er skilyrði

  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum

  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð

  • Æskilegt að viðkomandi hafi reynslu af sálfræðigreiningum og meðferð.

  • Mjög góð íslenskukunátta er skilyrði

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sálfræðingafélag Íslands hafa gert.

Þjónustusvæðið nær frá Þorlákshöfn í vestri til Hafnar í austri. Hlutverk HSU er að móta, þróa og útfæra heilbrigðisþjónustu í umdæminu og tryggja íbúum Suðurlands og öðrum þjónustuþegum jafnan aðgang að bestu heilbrigðisþjónustu sem völ er á hverju sinni. Þar sem þjónustusvæðið er víðfeðmt er hluti þjónustu veittur í fjarþjónustu sem veitir tækifæri til fjarvinnu. Þjónustumarkmið HSU byggja á gildum okkar um fagmennsku, virðingu og samvinnu. Velferð og þarfir þjónustuþega eru okkar leiðarljós.

Umsókninni þurfa að fylgja staðfestar upplýsingar um menntun, starfsleyfi og fyrri störf.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Heilbrigðisstofnunar Suðurlands við ráðningu í starfið.

Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 27.04.2026

Nánari upplýsingar veitir

Thelma Gunnarsdóttir

Forstöðusálfræðingur

Tölvupóstur: thelma.gunnarsdottir@hsu.is

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Suður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Sálfræðingur óskast til starfa á HSU

Staðsetning

Óstaðbundið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

17.04.2026

Umsóknarfrestur

27.04.2026