Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur á göngudeild ofnæmislækninga

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

50-100%

Starf skráð

16.04.2026

Umsóknarfrestur

28.04.2026

Hjúkrunarfræðingur á göngudeild ofnæmislækninga

Við auglýsum eftir metnaðarfullum hjúkrunarfræðingi til starfa á göngudeild ofnæmislækninga á A3 í Fossvogi. Um er að ræða spennandi og fjölbreytt starf í faglegu og styðjandi umhverfi sem einkennist af mjög góðri teymisvinnu hjúkrunarfræðinga og sérfræðilækna.

Á göngudeildinni fer fram greining og sérhæfð meðferð ofnæmis- og lungnasjúkdóma. Meðal verkefna eru ofnæmishúðpróf, fæðuþolpróf, afnæmingarmeðferðir og líftæknilyfjameðferð við alvarlegum astma.

Við sækjumst eftir hjúkrunarfræðingi sem er nákvæmur og sjálfstæður í starfi og hefur áhuga á að taka þátt í þróun og umbótum í þjónustunni. Í boði er einstaklingsmiðuð aðlögun undir leiðsögn reynds hjúkrunarfræðings.

Starfshlutfall er samkomulag og er starfið laust 1. maí 2026 eða samkvæmt nánara samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Framkvæmd sérhæfðra ofnæmismeðferða

  • Framkvæmd og túlkun ofnæmisrannsókna

  • Fræðsla og kennsla til sjúklinga og aðstandenda

  • Þátttaka í gæðastarfi og þróun þjónustu innan einingar

  • Önnur verkefni á deild í samráði við deildarstjóra

Hæfniskröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi

  • Skipulögð, sjálfstæð og nákvæm vinnubrögð

  • Reynsla af hjúkrun bráðveikra er kostur

  • Íslenskukunnátta áskilin

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, hjúkrunarfræðingur, hjúkrun, teymisvinna

Tungumálahæfni: íslenska 4/5

Staðsetning: Fossvogur, 108 Reykjavík

Starfshlutfall er 50-100%

Umsóknarfrestur er til og með 28.04.2026

Nánari upplýsingar veitir

Geirný Ómarsdóttir

Tölvupóstur: geirnyo@landspitali.is

Sími: 8245100

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur á göngudeild ofnæmislækninga

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

50-100%

Starf skráð

16.04.2026

Umsóknarfrestur

28.04.2026