Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Lögreglu­stjórinn á Norður­landi eystra

Upplýsingar um starf

Starf

Saksóknarfulltrúi - Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

16.04.2026

Umsóknarfrestur

06.05.2026

Saksóknarfulltrúi - Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra

Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra auglýsir laust til umsóknar starf saksóknarfulltrúa við embættið með starfsstöð á Akureyri. Um er að ræða tímabundna afleysingu frá 1. ágúst 2026 til og með 31. júlí 2027.

Framtíðarsýn embættis Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra er framsækið embætti fyrir vaxandi samfélag.

Helstu verkefni og ábyrgð

Starfið felst einkum í afgreiðslu lögreglumála, aðstoð við ákvörðun um saksókn, umsjón með sektargerðum, samningu ákæra og greinargerða. Í starfinu felst náið samstarf við lögreglu, skipulag verkefna, aðstoð við rannsóknir á rannsóknarstigi og fyrir dómi, málsmeðferð og flutningur sakamála fyrir dómi, umsagnir um útgáfu leyfa og útgáfa þeirra, auk annarra tilfallandi verkefna sem starfsmanni kunna að vera falin.

Hæfniskröfur

Mikilvæg hæfni:

  • Embættis- eða meistarapróf í lögfræði (ML eða Cand.Jur.) er skilyrði

  • Góð þekking á sakamálaréttarfari er kostur

  • Starfsreynsla á sviði sakamála kostur

  • Þekking eða reynsla á sviði stjórnsýslu kostur

  • Mjög góð íslenskukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti

  • Gott vald á ensku

Mikilvægir eiginleikar:

  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og hæfni til að starfa í hóp

  • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi

  • Skipulögð og nákvæm vinnubrögð

  • Lausnamiðað og jákvætt viðhorf

  • Sveigjanleiki og gott álagsþol

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Stéttarfélag lögfræðinga hafa gert.

Um fullt dagvinnustarf er að ræða, en saksóknarfulltrúi sinnir þó einnig bakvöktum.

Umsókn skal fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið, auk afrita af prófskírteinum ásamt nöfnum tveggja umsagnaraðila. Umsækjendur eru beðnir um að vanda umsóknir sínar.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir um starfið gilda í sex mánuði.

Vakin er athygli á því að engan má ráða til starfa hjá lögreglu sem hefur gerst sekur um refsivert athæfi sem telja má svívirðilegt að almenningsáliti eða sýnt af sér háttsemi sem rýrt getur það traust sem starfsmenn lögreglu verða almennt að njóta. Til þess að staðreyna þetta er lögreglu heimilt að afla upplýsinga úr sakaskrá eða málaskrá lögreglu, sbr. 28. gr. a. lögreglulaga nr. 90/1996.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 06.05.2026

Nánari upplýsingar veitir

Páley Borgþórsdóttir

lögreglustjóri

Tölvupóstur: pb02@logreglan.is

Sími: 4442800

Agnes Björk Blöndal

aðallögfræðingur

Tölvupóstur: abb01@logreglan.is

Sími: 444-2800

Þjónustuaðili

Lögreglu­stjórinn á Norður­landi eystra

Upplýsingar um starf

Starf

Saksóknarfulltrúi - Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

16.04.2026

Umsóknarfrestur

06.05.2026