Þjónustuaðili
Mennta- og barnamálaráðuneytið
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur á sviði fjármála - Tækifæri til að móta framtíð framhaldsskóla
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
15.04.2026
Umsóknarfrestur
04.05.2026
Sérfræðingur á sviði fjármála - Tækifæri til að móta framtíð framhaldsskóla
Það skiptir öllu fyrir íslenskt samfélag að fjárfesta í framtíðinni. Þess vegna verjum við 50 milljörðum á ári í öfluga framhaldsskóla. Þessu fylgir mikil ábyrgð!
Í mennta- og barnamálaráðuneytinu gefast einstök tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif á mótun og þróun íslensks menntakerfis. Við leitum nú að metnaðarfullum sérfræðingi í fjölbreytt og krefjandi starf á skrifstofu fjármála og innri þjónustu sem lýtur að fjármögnun og stefnumótun framhaldsskóla.
Viðkomandi þarf að búa yfir ótal kostum svo sem ómældri jákvæðni, ráðkænsku, greiningarhæfni, frumkvæði og skipulagsgáfu. Viðkomandi þarf að geta unnið sjálfstætt sem og í hópi og vera tilbúin/n til að takast á við snúin verkefni við fjölbreyttar aðstæður.
Helstu verkefni og ábyrgð
Aðkoma að gerð fjármálaáætlunar og fjárlaga, sem og eftirfylgni með framkvæmd fjárlaga í samræmi við lög um opinber fjármál.
Tengiliður við framhaldsskóla út af fjármálum þeirra.
Vinna við þróun nýs reiknilíkans framhaldsskóla sem ákvarðar fjármagn til þeirra.
Samskipti við Fjársýslu ríkisins, fjármálaráðuneytið og önnur fagráðuneyti.
Öflun upplýsinga og vinna við svörun fyrirspurna frá Alþingi, Ríkisendurskoðun, fjölmiðlum o.fl.
Samskipti við aðila sem ráðuneytið er í samningssambandi við.
Hæfniskröfur
Meistarapróf í viðskiptafræði, hagfræði, verkfræði eða sambærilegum greinum.
Góð þekking á fjárhagsbókhaldi, t.d. Orra fjárhagsbókhaldi ríkisins.
Þekking og reynsla af rekstri og verkefnastjórnun er kostur.
Þekking á lögum um opinber fjármál og rekstri opinberra stofnana er kostur.
Styrkur til að veita ráðgjöf/leiðsögn til yfirmanna stofnana og samstarfsaðila. Mjög góð hæfni til að miðla upplýsingum á skýran og greinargóðan hátt.
Mjög góð færni í vinnu með tölur og úrvinnslu gagna, þ.m.t. í Excel.
Reynsla af vinnslu gagna, s.s. í vöruhúsum og með framsetningu í PowerBI er kostur.
Mjög gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins hafa gert.
Um fullt starf er að ræða og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg ferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningi fyrir hæfni umsækjanda í starfið.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Við ráðningar í störf hjá mennta- og barnamálaráðuneyti er tekið mið af jafnréttisáætlun Stjórnarráðsins.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 04.05.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þjónustuaðili
Mennta- og barnamálaráðuneytið
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur á sviði fjármála - Tækifæri til að móta framtíð framhaldsskóla
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
15.04.2026
Umsóknarfrestur
04.05.2026