Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

FSRE

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðingur í áætlanagerð og kostnaðargreiningum

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

16.04.2026

Umsóknarfrestur

27.04.2026

Sérfræðingur í áætlanagerð og kostnaðargreiningum

Framkvæmdasýslan Ríkiseignir (FSRE) leitar að metnaðarfullum og talnaglöggum einstaklingi til að ganga til liðs við teymi sérfræðinga í deild áætlana. Hlutverk deildarinnar er að gera kostnaðaráætlanir og útkomuspár í framkvæmdaverkefnum sem eru nýttar í ákvarðanatöku og til að hafa skilvirkt eftirlit með framvindu verkefna með tilliti til tíma og kostnaðar.

FSRE rekur eitt af stærstu fasteignafélögum landsins auk þess að bera ábyrgð á og stýra uppbyggingu innviða og aðstöðu fyrir ríkisaðila. Fjárhagslegt umfang nýframkvæmda og viðhalds í umsjón FSRE nemur um 30 milljörðum á ári.

Um er að ræða spennandi starf í lifandi umhverfi sem krefst samvinnu við innri og ytri aðila og býður upp á tækifæri til að hafa áhrif á þróun verklags ásamt því að samræma vinnubrögð til að tryggja gæði í undirbúningi og framvindu framkvæmda hjá hinu opinbera.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Gerð kostnaðaráætlana og útkomuspáa fyrir framkvæmda- og viðhaldsverkefni

  • Þróun á verklagi við gerð kostnaðaráætlana og útkomuspáa

  • Greina gæði áætlana, áhættu og vikmörk

  • Framsetning gagna vegna ákvarðanatöku um framgang verkefna

  • Uppfærsla, þróun og sjálfvirknivæðing kostnaðarbanka FSRE

  • Rýni áætlana og greininga á sviði kostnaðar, tíma og áhættu, frá hönnuðum og verktökum

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi

  • Reynsla af áætlunargerð, spálíkönum, greiningarvinnu og framsetningu gagna

  • Þekking á hönnun og/eða verklegum framkvæmdum æskileg

  • Þekking á sjálfvirknivæðingu og nýtingu gervigreindar er kostur

  • Þekking af hagnýtingu gagna og framsetningu með PowerBI eða sambærilegu skýrslugerðartóli

  • Góð samskipta- og samstarfshæfni

  • Þekking á tímaáætlunum og framvindugreiningum er kostur

  • Frumkvæði, metnaður, skipulagsfærni og öguð vinnubrögð

  • Góð íslensku- og enskukunnátta og hæfni í tjáningu í ræðu og riti

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Öllum umsóknum þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.

Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. reglur nr. 1000/2019, um auglýsingar lausra starfa. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Við hjá FSRE mótum og rekum aðstöðu sem nýtist öllum íbúum landsins með einum eða öðrum hætti. Við önnumst fasteignir og jarðir ríkisins, öflum húsnæðis og stýrum framkvæmdum við breytingar, endurbætur og nýbyggingar. Okkar leiðarljós er að aðstaða og þjónusta FSRE styðji við verðmætasköpun og velsæld í íslensku samfélagi.

FSRE heldur utan um stærsta fasteignasafn landsins sem samanstendur af 530 þúsund m² húsnæðis í 380 eignum auk um 300 jarða og landsvæða. Við vinnum jafnframt að fjölbreyttum fasteignaþróunarverkefnum sem snerta flest svið mannlífsins s.s. heilbrigðis- og velferðarmál, menningu, menntun, löggæslu, dómskerfi, náttúru og friðlýst svæði.

Hjá FSRE starfa um 70 sérfræðingar með breiða þekkingu á sviði fasteignaþróunar, framkvæmda og rekstrar. Við erum spennandi vinnustaður á fleygiferð inn í framtíðina, bjóðum upp á verkefnamiðað vinnuumhverfi og sveigjanlegan vinnutíma. Við leggjum áherslu á að styðja starfsfólk okkar í þekkingaröflun, m.a. í gegnum alþjóðlegt tengslanet. Við brennum fyrir jafnrétti, frábærri vinnustaðamenningu og fjölskylduvænum vinnustað.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 27.04.2026

Nánari upplýsingar veitir

Aldís Stefánsdóttir

Mannauðsstjóri

Tölvupóstur: aldis.stefansdottir@fsre.is

Davíð Friðgeirsson

Deildarstjóri

Tölvupóstur: david.fridgeirsson@fsre.is

Þjónustuaðili

FSRE

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðingur í áætlanagerð og kostnaðargreiningum

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

16.04.2026

Umsóknarfrestur

27.04.2026