Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Austurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Sálfræðingur Heilbrigðisstofnun Austurlands
Staðsetning
Óstaðbundið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
15.04.2026
Umsóknarfrestur
15.05.2026
Sálfræðingur Heilbrigðisstofnun Austurlands
Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða sálfræðing til starfa hjá stofnuninni. Um er að ræða tímabundið starf til eins árs með möguleika á framlengingu. Staðan veitist frá 1. júlí 2026 eða eftir nánara samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Óskað er eftir sálfræðingi í geðheilsuteymi HSA til að veita almenna sálfræðiþjónustu fyrir fullorðna í bæði 1. og 2. línu geðheilbrigðisþjónustu. Staðsetning starfs getur verið sveigjanleg. Viðkomandi þarf að hafa reynslu af því að veita meðferð við þunglyndi og kvíða og áföllum. Helstu verkefni: Greining á tilfinningavanda og meðferð. Þátttaka í stefnumótun sálfræðiþjónustu heilsugæslunnar á Austurlandi.
Hæfniskröfur
Réttindi til að starfa sem sálfræðingur á Íslandi. Reynsla af klínísku starfi er æskileg. Þekking og reynsla af hugrænni atferlismeðferð. Reynsla af notkun sálfræðilegra prófa og greiningartækja æskileg. Samskiptahæfni og sveigjanleiki. Góð íslenskukunnátta er skilyrði og ökufærni er nauðsynleg. Lögð er áhersla á faglegan metnað, stundvísi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sálfræðingafélag Íslands hafa gert.
Geðheilsuteymi HSA er þverfaglegt teymi. Í teyminu starfa sálfræðingar, iðjuþjálfi, sjúkraþjálfari, geðlæknir, hjúkrunarfræðingur, félagsráðgjafi og heilbrigðisritari. Haldnir eru vikulegir teymisfundir og lengri fundir mánaðarlega þar sem unnið er að þróunar og umbótastarfi innan teymisins.
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sálfræðingafélag Íslands hafa gert.
Umsóknum um auglýst störf skal skilað rafrænt til HSA með því að fylla út umsóknarform á vefsíðu stofnunarinnar; www.hsa.is, undir flipanum Laus störf. Sé sótt um í opinni starfsumsókn ber að tilgreina við hvað viðkomandi óskar að starfa og hvar. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði en alls eru starfsstöðvarnar þrettán talsins. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.
Starfshlutfall er 100% Umsóknarfrestur er til og með 15.05 . 2026
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 15.05.2026
Nánari upplýsingar veitir
Sigurlín Hrund Kjartansdóttir
Yfirsálfræðingur
Tölvupóstur: sigurlin.h.kjartansdottir@hsa.is
Sími: 8622793
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Austurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Sálfræðingur Heilbrigðisstofnun Austurlands
Staðsetning
Óstaðbundið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
15.04.2026
Umsóknarfrestur
15.05.2026