Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Mennta­skólinn í Kópavogi

Upplýsingar um starf

Starf

Enskukennari í MK

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

15.04.2026

Umsóknarfrestur

27.04.2026

Enskukennari í MK

Menntaskólinn í Kópavogi auglýsir eftir enskukennara frá og með 1. ágúst 2026. Um 100% stöðu er að ræða.

Menntaskólinn í Kópavogi er framhaldsskóli sem kennir samkvæmt áfangakerfi og býður upp á kennslu til stúdentsprófs á bóknámsbrautum, einnig kennslu á iðn- og verknámsbrautum á matvælasviði og kvöldnám í leiðsögn. Um 100 starfsmenn starfa við skólann og eru nemendur um 1000.

Helstu verkefni og ábyrgð

Kennsla og námsmat

Faglegt samstarf

Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu

Hæfniskröfur

Umsækjendur skulu uppfylla kröfur um menntun og hæfni skv. lögum nr. 95/2019.

Háskólamenntun sem nýtist við kennslu í ensku.

Eiga sögu um góð og jákvæð samskipti í starfi.

Hafa reynslu af kennslu eða vinnu með ungu fólki.

Búa yfir faglegum metnaði, frumkvæði, öguðum vinnubrögðum og jákvæðu hugarfari.

Búa yfir hæfni til að starfa með öðrum sem og að vinna sjálfstætt.

Góð tölvukunnátta er nauðsynleg.

Góð hæfni í íslensku í ræðu og riti.

Kostur ef viðkomandi getur kennt fleiri greinar.

Við ráðningu verður miðað við að sá er starfið hlýtur falli sem best að aðstæðum og þörfum skólans.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kennarasamband Íslands hafa gert.

Umsóknum skal skilað í gegnum Starfatorg, starfatorg.is, og skal náms- og starfsferilsskrá fylgja með innsendri umsókn sem og sakavottorð og leyfisbréf. Mikilvægt er að umsækjandi láti þau gögn fylgja með sem viðkomandi telur að skipti máli í ráðningarferlinu og skulu innsend gögn vera á íslensku. Einungis innsend gögn verða lögð til grundvallar ráðningu og ráða vali þeirra sem kallaðir verða í starfsviðtal.

Í samræmi við jafnréttisáætlun skólans er fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út sbr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019, um auglýsingar á lausum störfum.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 27.04.2026

Nánari upplýsingar veitir

Guðríður Hrund Helgadóttir

skólameistari

Tölvupóstur: gudridur.hrund.helgadottir@mk.is

Sími: 5944000

Þjónustuaðili

Mennta­skólinn í Kópavogi

Upplýsingar um starf

Starf

Enskukennari í MK

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

15.04.2026

Umsóknarfrestur

27.04.2026