Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
Upplýsingar um starf
Starf
Sumarafleysing - Hjúkrunarfræðingar/hjúkrunanemar í heimahjúkrun
Staðsetning
Suðurnes
Starfshlutfall
40-80%
Starf skráð
14.04.2026
Umsóknarfrestur
24.04.2026
Sumarafleysing - Hjúkrunarfræðingar/hjúkrunanemar í heimahjúkrun
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðinga/nema í sumarafleysingar í heimahjúkrun. Um er að ræða vaktavinnu. Heimahjúkrun sér um víðtæka hjúkrun í heimahúsum fyrir íbúa á Suðurnesjum.
Leitað er eftir áhugasömum og metnaðarfullum einstaklingum sem geta unnið sjálfstætt. Á HSS er lögð áhersla á góða samvinnu, stuttar boðleiðir og góðan starfsanda.
Helstu verkefni og ábyrgð
Störf hjúkrunarfræðinga/nema í heimahjúkrun eru bæði fjölbreytt og krefjandi. Heimahjúkrun veitir víðtæka hjúkrun í heimahúsum vegna langvinnra sjúkdóma og andlegrar og líkamlegrar skerðingar. Unnið er á grundvelli þverfaglegs samstarfs sérfræðinga og áhersla lögð á heildarsýn og samþætta þjónustu. Hjúkrunarfræðingar starfa samkvæmt lögum og reglugerðum um heilbrigðisstarfsmenn, siðareglum og markmiðum hjúkrunar og deildarinnar.
Hæfniskröfur
Íslenskt hjúkrunarleyfi eða að hafa lokið þriggja ára námi í hjúkrunarfræði
Faglegur metnaður og reynsla af teymisvinnu
Framúrskarandi samskiptahæfni
Sjálfstæði í vinnubrögðum
Fjölbreytt reynsla í hjúkrun er kostur
Gilt ökuleyfi og hreint sakavottorð
Góð íslensku- og enskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum, starfsleyfi og staðfestingu á námi hjá nemum. Ákvörðun um ráðningu byggist á innsendum gögnum og/eða umsögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSS við ráðningar á stofnunina. Öllum umsóknum verður svarað. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Starfsmenn í heimahjúkrun þurfa að hafa bílpróf.
Starfshlutfall er 40-80%
Umsóknarfrestur er til og með 24.04.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
Upplýsingar um starf
Starf
Sumarafleysing - Hjúkrunarfræðingar/hjúkrunanemar í heimahjúkrun
Staðsetning
Suðurnes
Starfshlutfall
40-80%
Starf skráð
14.04.2026
Umsóknarfrestur
24.04.2026