Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Heilsu­gæsla höfuð­borg­ar­svæð­isins

Upplýsingar um starf

Starf

Forstöðumaður Heyrnar og talmeinastöðvar HH

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

14.04.2026

Umsóknarfrestur

29.04.2026

Forstöðumaður Heyrnar og talmeinastöðvar HH

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins, HH, leitar að faglegum og metnaðarfullum leiðtoga til að leiða og þróa starfsemi Heyrnar og talmeinastöðvar stofnunarinnar. Um er að ræða ábyrgðarmikið og krefjandi starf sem reynir á frumkvæði, stefnumótandi hugsun og samskiptahæfileika. Áhersla er lögð á að skapa árangursdrifið og hvetjandi starfsumhverfi þar sem starfsfólk teymisins fær að blómstra og skila framúrskarandi árangri.

Heyrnar og talmeinastöð annast þjónustu við heyrnarlausa, heyrnarskerta og þá sem eru með heyrnar- og talmein. Sinnir heyrnarmælingum, greiningum og meðferð á heyrnar- og talmeinum. Veitir faglega ráðgjöf og annast þjálfun og endurhæfingu heyrnarlausra, heyrnarskertra og þeirra sem eru með heyrnar- og talmein. Sinnir forvörnum í samvinnu við aðrar stofnanir ásamt því að stunda rannsóknir og sinna fræðslu á sínu starfssviði.

Forstöðumaður heyrir undir forstjóra Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og ber ábyrgð á rekstri Heyrnar og talmeinastöðvar í samræmi við skipulag heilsugæslunnar.

Um er að ræða 100% ótímabundið starf og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. júní eða eftir samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Ber ábyrgð á rekstri og faglegri stjórnun Heyrnar og talmeinastöðvar heilsugæslunnar

  • Annast áætlanagerð og tryggir hagkvæma nýtingu aðfanga

  • Stuðlar að samvinnu og tengslum milli fagaðila innan og utan HH

  • Er leiðandi í að samræma og efla gæði þjónustunnar á landsvísu

  • Tekur þátt í stefnumótun, ber ábyrgð á þróun og samhæfingu gæða- og árangursvísa er varða starfsemina

  • Tryggir þróun verkferla og klínískra leiðbeininga á sviði heyrnar- og talmeinafræðiþjónustu heilsugæslunnar

  • Þróar og innleiðir nýjungar á sviði heyrnar- og talmeinafræðiþjónustu innan heilsugæslunnar

  • Stuðlar að jákvæðri vinnustaðamenningu og árangursríku teymisstarfi

Hæfniskröfur

  • Háskólapróf sem nýtist í starfi, meistaranám kostur

  • Starfsreynsla og þekking á málefni heyrnar- og talmeinafræði, fötlunarfræði eða á samsvarandi sviði kostur

  • Þekking, reynsla og hæfni á sviði stjórnunar og reksturs

  • Leiðtogahæfni og metnaður til að ná árangri í starfi

  • Hæfni og áhugi til að leiða þverfaglegt teymi

  • Frumkvæði, skipulagshæfni og jákvætt viðmót

  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum

  • Góð almenn tölvuþekking

  • Góð hæfni til tjáningar í ræðu og riti á íslensku og ensku

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilsskrá ásamt kynningarbréfi. Jafnframt skal leggja fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Katli Berg Magnússyni, framkvæmdastjóra mannauðs Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík.

Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindarstefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 29.04.2026

Nánari upplýsingar veitir

Ketill Berg Magnússon

framkvæmdastjóri mannauðs

Tölvupóstur: ketill.berg.magnusson@heilsugaeslan.is

Sími: 513-5000

Þjónustuaðili

Heilsu­gæsla höfuð­borg­ar­svæð­isins

Upplýsingar um starf

Starf

Forstöðumaður Heyrnar og talmeinastöðvar HH

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

14.04.2026

Umsóknarfrestur

29.04.2026