
Þjónustuaðili
Háskóli Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Náms- og starfsráðgjafi
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
13.04.2026
Umsóknarfrestur
24.04.2026
Náms- og starfsráðgjafi
Laust er til umsóknar fullt starf náms- og starfsráðgjafa við Nemendaráðgjöf Háskóla Íslands.
Við Nemendaráðgjöf HÍ starfa náms- og starfsráðgjafar, sálfræðingar, félagsráðgjafi og verkefnastjórar. Fagfólk vinnur saman í teymum með velferð nemenda, og þeirra sem til Nemendaráðgjafar leita, að leiðarljósi. Nemendaráðgjöf heyrir undir Kennslusvið Háskóla Íslands.
Helstu verkefni og ábyrgð
Að veita náms- og starfsráðgjöf, stuðning og persónulega ráðgjöf
Aðstoð við starfsþróun, leiðbeiningar við gerð ferilskráa og undirbúningur fyrir atvinnuviðtöl
Fræðsla til nemenda í formi námskeiða, vinnustofa, fyrirlestra og kynninga
Leggja fyrir áhugakönnunina Bendil
Hæfniskröfur
MA próf á sviði náms- og starfsráðgjafar og leyfisbréf sem náms- og starfsráðgjafi
Reynsla af náms- og starfsráðgjöf
Réttindi til að leggja fyrir áhugasviðskönnunina Bendil
Hæfni í að koma fram, halda kynningar og námskeið
Hæfni í mannlegum samskiptum, jákvætt viðmót og hæfni til að vinna bæði sjálfstætt og í teymi
Góð íslensku- og enskukunnátta bæði í ræðu og riti
Góð almenn tölvukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:
Ferilskrá
Kynningarbréf þar sem fjallað er um hvernig umsækjandi uppfyllir þær hæfnikröfur sem settar eru fram í auglýsingunni og hvað hann telur sig geta lagt af mörkum til starfsins
Afrit af prófskírteinum
Upplýsingar um umsagnaraðila
Upplýsingar um umsagnaraðila
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.
Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans.
Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.
Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.
Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt í 400 námsleiðir á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.
Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi. 36 stunda vinnuvika hefur verið innleidd í stjórnsýslustörfum skólans.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 24.04.2026
Nánari upplýsingar veitir
Svandís Sturludóttir
Tölvupóstur: svandiss@hi.is

Þjónustuaðili
Háskóli Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Náms- og starfsráðgjafi
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
13.04.2026
Umsóknarfrestur
24.04.2026