Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Sjúkra­húsið á Akureyri

Upplýsingar um starf

Starf

Sumarstarf - öryggisvörður á bráðamóttöku Sjúkrahússins á Akureyri

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

-100%

Starf skráð

14.04.2026

Umsóknarfrestur

24.04.2026

Sumarstarf - öryggisvörður á bráðamóttöku Sjúkrahússins á Akureyri

Sjúkrahúsið á Akureyri (SAk) auglýsir stöðu öryggisvarðar á næturvaktir á bráðamóttu. Um er að ræða 100% tímabundna stöðu frá 01.06.26 - 31.07.26.

Áhugasamir eru hvattir til að sækja um!

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Öryggisgæsla og eftirlit

  • Innskráning sjúklinga og móttaka á greiðslu fyrir þjónustu

  • Tryggja öryggi sjúklinga, starfsmanna og annara sem leið eiga um bráðamóttöku

  • Eftirlit og öryggisvarsla á næturnar

  • Bregðast við neyðartilfellum

  • Önnur tilfallandi verkefni

Hæfniskröfur

  • Sveigjanleiki og lipurð í mannlegum samskiptum

  • Góð framkoma

  • Góð almenn tölvukunnátta og færni í mæltu og rituðu máli á íslensku og ensku

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Sjúkrahússins á Akureyri við ráðningar í störf á sjúkrahúsinu. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum. Öllum umsóknum verður svarað.

Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi þar sem áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.

Samkvæmt mannauðsstefnu Sjúkrahússins á Akureyri er lögð áhersla á að ráða til starfa og halda í hæfileikaríka einstaklinga. Við val á starfsfólki er menntun, reynsla, færni og hæfni höfð að leiðarljósi. Mannauðsstefnan er leiðarljós stjórnenda og starfsfólks sem gerir sjúkrahúsið framsækinn og eftirsóknarverðan vinnustað, en hún byggir á grunngildum sjúkrahússins sem eru: ÖRYGGI, SAMVINNA og FRAMSÆKNI.

Starfshlutfall er -100%

Umsóknarfrestur er til og með 24.04.2026

Nánari upplýsingar veitir

Stefán Helgi Garðarsson

Tölvupóstur: shg1216@sak.is

Sími: 463-0100

Kristjana Kristjánsdóttir

Tölvupóstur: kristjanak@sak.is

Sími: 463-0100

Þjónustuaðili

Sjúkra­húsið á Akureyri

Upplýsingar um starf

Starf

Sumarstarf - öryggisvörður á bráðamóttöku Sjúkrahússins á Akureyri

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

-100%

Starf skráð

14.04.2026

Umsóknarfrestur

24.04.2026