Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur á útskriftarmiðstöð í Fossvogi

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

14.04.2026

Umsóknarfrestur

27.04.2026

Hjúkrunarfræðingur á útskriftarmiðstöð í Fossvogi

Ertu framsækin/nn? Hefurðu áhuga á nýsköpun? Ertu drífandi?

Taktu þátt í uppbyggingu nýrrar starfseiningar á Landspítala. Um er að ræða undireiningu flæðisdeildar spítalans og mikilvægan hlekk í þjónustu við sjúklinga þar sem áhersla er lögð á skilvirkni og farsæl lok sjúkrahúsdvalar. Mikil uppbygging er fyrirhuguð. Deildin verður opin frá kl. 8-20 alla daga vikunnar.

Við sækjumst eftir jákvæðum, sjálfstæðum og metnaðarfullum hjúkrunarfræðingum sem hafa brennandi áhuga á áskorunum í síbreytilegu spítalaumhverfi. Einstakt tækifæri til að hafa áhrif á þróun og framfarir í þjónustu Landspítala. Í boði er einstaklingsaðlögun undir leiðsögn reyndra fagaðila.

Starfshlutfall er 80-100% eða eftir samkomulagi og æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf eigi síðar en 1. ágúst 2026. Unnið er í vaktavinnu.

Þar sem um er að ræða tilraunarverkefni er ráðning tímabundin til eins árs.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Uppbygging þjónustu með áherslu á þjónustuþörf bráðalegudeilda spítalans og upplifun sjúklinga að leiðarljósi

  • Þátttaka í skipulagi og stjórnun skilvirks flæðis sjúklinga í gegnum Landspítala

  • Þróun verkferla á nýrri einingu í samstarfi við stjórnendur flæðisdeildar

  • Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu

  • Stuðla að farsælli útskrift og flutningi milli þjónustustiga með öryggi sjúklinga í fararbroddi

Hæfniskröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi

  • Faglegur metnaður og frumkvæði í starfi

  • Jákvæðni, góð samstarfshæfni og færni í mannlegum samskiptum

  • Lausnamiðuð hugsun og áhugi á að leysa flókin viðfangsefni

  • Góð íslenskukunnátta, að lágmarki B2 í evrópska tungumálarammanum

  • Áhugi á að starfa í krefjandi og síbreytilegu umhverfi

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, hjúkrunarfræðingur, sérfræðingur í hjúkrun, hjúkrun

Tungumálahæfni. íslenska 4/5

Staðsetning: Fossvogur, 108 Reykjavík

Starfshlutfall er 80-100%

Umsóknarfrestur er til og með 27.04.2026

Nánari upplýsingar veitir

Kristín Katla Swan

Deildarstjóri flæðisdeildar

Tölvupóstur: kristisw@landspitali.is

Garðar Örn Þórsson

Mannauðsstjóri

Tölvupóstur: gardarth@landspitali.is

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur á útskriftarmiðstöð í Fossvogi

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

14.04.2026

Umsóknarfrestur

27.04.2026