Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Austurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Aðstoðardeildarstjóri - Skurðdeild - Neskaupstaður
Staðsetning
Austurland
Starfshlutfall
90%
Starf skráð
14.04.2026
Umsóknarfrestur
27.04.2026
Aðstoðardeildarstjóri - Skurðdeild - Neskaupstaður
Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða aðstoðardeildarstjóra á skurðdeild Umdæmissjúkrahúss Austurlands í Neskaupstað. Um er að ræða a.m.k. 90% starfshlutfall í dagvinnu með breytilegum vinnutíma og í starfinu felast bakvaktir. Staðan er laus frá 1. júlí 2026.
Helstu verkefni og ábyrgð
Í starfi aðstoðardeildarstjóra felst m.a. að skipuleggja starf deildarinnar með deildarstjóra og leysa hann af í fríum.
Hæfniskröfur
Krafist er íslensks hjúkrunarleyfis og diplómu í skurðhjúkrun. Töluverð reynsla af vinnu á skurðstofu æskileg. Lögð er áhersla á metnað í starfi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsóknum um auglýst störf skal skilað rafrænt til HSA . Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði en alls eru starfsstöðvarnar fjórtán talsins. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.
Starfshlutfall er 90%
Umsóknarfrestur er til og með 27.04.2026
Nánari upplýsingar veitir
Jenný Lind Hjaltadóttir
Tölvupóstur: jenny.l.hjaltadottir@hsa.is
Sigríður Kristinsdóttir
Tölvupóstur: sigridur.kristinsdottir@hsa.is
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Austurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Aðstoðardeildarstjóri - Skurðdeild - Neskaupstaður
Staðsetning
Austurland
Starfshlutfall
90%
Starf skráð
14.04.2026
Umsóknarfrestur
27.04.2026