
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur á göngudeild húð- og kynsjúkdóma
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
60-70%
Starf skráð
13.04.2026
Umsóknarfrestur
27.04.2026
Hjúkrunarfræðingur á göngudeild húð- og kynsjúkdóma
Laus er til umsóknar staða hjúkrunarfræðings á göngudeild húð- og kynsjúkdóma í Fossvogi. Starfshlutfall er 60-70% og vinnutími virka daga kl. 8-16. Starfið er laust nú þegar eða samkvæmt samkomulagi.
Við leitum að hjúkrunarfræðingi sem hefur áhuga á fjölbreyttu og gefandi starfi þar sem umhyggja, fagmennska og góð samskipti fara saman. Á deildinni starfar samhentur 17 manna hópur hjúkrunarfræðinga, lækna, ritara og sjúkraliða sem leggur áherslu á stuðning, samvinnu og jákvætt andrúmsloft í daglegu starfi. Hjá okkur er lögð rík áhersla á að nýtt starfsfólk finni sig vel frá fyrsta degi.
Við tökum vel á móti nýjum samstarfsaðilum og bjóðum upp á markvissa og einstaklingshæfða aðlögun þar sem þín þekking og styrkleikar fá að njóta sín og þróast áfram.
Helstu verkefni og ábyrgð
Meðferð og fræðsla vegna húð- og kynsjúkdóma, meðal annars:
Sárameðferðir
Sérhæfðar meðferðir vegna frumubreytinga í húð
Gerð ofnæmisprófa vegna snertiofnæmis
Aðstoð við minniháttar aðgerðir
Þátttaka í þróun hjúkrunar og þverfaglegri teymisvinnu innan deildar
Önnur verkefni í samráði við deildarstjóra
Hæfniskröfur
Íslenskt hjúkrunarleyfi
Jákvæðni, frumkvæði og góð samskiptahæfni
Hæfni og áhugi á teymis- og verkefnavinnu
Faglegur metnaður og sjálfstæði í starfi
Góð íslenskukunnátta í bæði mæltu og rituðu máli
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Hjúkrunarfræðingur, hjúkrun, teymisvinna
Tungumálahæfni: íslenska 4/5
Staðsetning: Fossvogi, 108 Reykjavík
Starfshlutfall er 60-70%
Umsóknarfrestur er til og með 27.04.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur á göngudeild húð- og kynsjúkdóma
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
60-70%
Starf skráð
13.04.2026
Umsóknarfrestur
27.04.2026