
Þjónustuaðili
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Upplýsingar um starf
Starf
Sjúkraliði - Heimahjúkrun HH
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
30-90%
Starf skráð
13.04.2026
Umsóknarfrestur
30.04.2026
Sjúkraliði - Heimahjúkrun HH
Heimahjúkrun Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins leitar að sjúkraliða í vaktavinnu og dagvinnu. Um er að ræða ótímabundið starf á morgun-, kvöld- og helgarvaktir eða dagvinnu. Starfshlutfall er 30-90% eða samkvæmt samkomulagi. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi.
Heimahjúkrun Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins sinnir heimahjúkrun í Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði, með aðsetur að Miðhrauni 4 í Garðabæ. Hlutverk heimahjúkrunar er að veita einstaklingsmiðaða hjúkrun þar sem forvarnir, heilsuvernd, heilsuefling, fagleg þekking og samstarf er haft að leiðarljósi.
Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (https://island.is/s/hh).
Helstu verkefni og ábyrgð
Starfssvið sjúkraliða í heimahjúkrun er að veita víðtæka hjúkrun í heimahúsum. Sjúkraliðar bera ábyrgð á að vinna samkvæmt hjúkrunaráætlun sem lögð er til grundvallar hjúkrunarmeðferð skjólstæðinga. Sjúkraliðar veita skjólstæðingum og aðstandendum þeirra leiðbeiningar og fræðslu. Starfið er mjög fjölbreytt og gefandi. Sjúkraliði vinnur náið í teymi með öðrum sjúkraliðum og hjúkrunarfræðingum þar sem teymisstjóri sem er hjúkrunarfræðingur fer fyrir teyminu. Sjúkraliði sinnir einnig öðrum verkefnum sem þeim er falið af teymisstjóra ásamt því að taka þátt í þróunarverkefnum og gæðastarfi innan stofnunar. Starfið gerir kröfu um góða íslenskukunnáttu.
Hæfniskröfur
Íslenskt sjúkraliðaleyfi
Reynsla af heimahjúkrun æskileg
Góð samskipta- og skipulagshæfni
Faglegur metnaður og áhugi á að vinna við heimahjúkrun
Sjálfstæði í starfi
Gilt ökuleyfi
Hreint sakavottorð
Góð íslenskukunnátta skilyrði
Góð enskukunnátta
Fríðindi í starfi:
Samgöngustyrkur
Heilsustyrkur
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilsskrá ásamt kynningarbréfi. Jafnframt skal leggja fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Katli Berg Magnússyni, framkvæmdastjóra mannauðssviðs Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt að óska eftir hreinu sakavottorði.
Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindarstefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Starfshlutfall er 30-90%
Umsóknarfrestur er til og með 30.04.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Upplýsingar um starf
Starf
Sjúkraliði - Heimahjúkrun HH
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
30-90%
Starf skráð
13.04.2026
Umsóknarfrestur
30.04.2026