
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Framkvæmdastjóri lækninga
Staðsetning
Suðurland
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
10.04.2026
Umsóknarfrestur
27.04.2026
Framkvæmdastjóri lækninga
Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSU) auglýsir laust til umsóknar starf framkvæmdastjóra lækninga. Leitað er eftir kraftmiklum, metnaðarfullum og farsælum stjórnenda. Framkvæmdastjóri lækninga situr í framkvæmdastjórn HSU og heyrir undir forstjóra. Starfshlutfallið er 100% og er ráðið í starfið frá og með 1. júní nk. eða eftir samkomulagi.
Starfið felur í sér faglega forystu, stefnumótun og þróun læknisþjónustu í einu stærsta og víðfeðmasta heilbrigðisumdæmi landsins. Framkvæmdastjóri lækninga ber faglega ábyrgð á læknisþjónustu stofnunarinnar auk þess sem hann ber ábyrgð á klínísku sviði.
HSU veitir víðtæka og samþætta heilbrigðisþjónustu um allt Suðurland, þar á meðal heilsugæsluþjónustu, sjúkrahús- og göngudeildarþjónustu, hjúkrunarþjónustu auk sjúkraflutninga. Áhersla er lögð á jafnt aðgengi, öryggi, gæði þjónustu og öflugt þverfaglegt samstarf.
Helstu verkefni og ábyrgð
Ber ábyrgð á að móta og leiða faglega stefnu læknisþjónustu í samræmi við markmið HSU þvert á stofnunina
Ber ábyrgð á klínísku sviði, þ.m.t. rekstri, mannauði og samhæfingu þjónustu, með það að markmiði að tryggja heildstæða og skilvirka starfsemi samhliða sterkri faglegri forystu
Ber ábyrgð á að tryggja gæði, öryggi og samræmingu læknisþjónustu á öllum starfseiningum HSU
Stuðlar að klínískum leiðbeiningum og stöðluðum verklagsreglum
Eflir faglega þróun og stuðlar að öflugri starfsþróun og menntun
Tekur virkan þátt í stefnumótun, rekstri og þróun stofnunarinnar sem hluti af framkvæmdastjórn
Ber ábyrgð á samvinnu milli fagsviða og heilbrigðisstétta og stuðlar að virkri teymisvinnu
Vera faglegur ráðgjafi lækna, stjórnanda og er tengiliður við aðrar heilbrigðisstofnanir
Stuðlar að nýsköpun, umbótum og skilvirkni í þjónustu
Styður við rannsóknir, kennslu og þróunarstarf
Hæfniskröfur
Læknisfræðimenntun og sérfræðileyfi er skilyrði
Víðtæk reynsla af klínísku starfi er skilyrði
Reynsla af stjórnunarstörfum og/eða leiðtogahlutverki er skilyrði
Þekking og reynsla af rekstri og skipulagi heilbrigðisþjónustu er æskileg
Jákvætt viðhorf og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
Leiðtogahæfileikar og geta til að hrinda breytingum í framkvæmd
Frumkvæði, áræðni og skipulagshæfni
Mjög góð íslenskukunnátta og góð enskukunnátta
Hæfni í tjáningu í ræðu og riti
Brennandi áhugi á þróun þjónustu Heilbrigðisstofnunar Suðurlands
Vilji til að helga sig sýn og gildum HSU
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.
Ráðið í starfið frá og með 1. júní nk. eða eftir samkomulagi.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 27.04.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Framkvæmdastjóri lækninga
Staðsetning
Suðurland
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
10.04.2026
Umsóknarfrestur
27.04.2026