Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Sjúkra­trygg­ingar

Upplýsingar um starf

Starf

Sumarstarf - Fulltrúi í Þjónustumiðstöð

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

10.04.2026

Umsóknarfrestur

20.04.2026

Sumarstarf - Fulltrúi í Þjónustumiðstöð

Sjúkratryggingar Íslands auglýsa sumarstarf. Um er að ræða fjölbreytt starf sem hentar fjölhæfum starfsmanni sem getur stigið inn í ólík verkefni sem leysa þarf innan stofnunarinnar. Verkefnin geta verið allt frá þjónustu og upplýsingagjöf í síma og þjónustuveri, til bakvinnslu við gagnaskráningar í kerfi stofnunarinnar.

Sjúkratryggingar er lykilstofnun í íslensku heilbrigðiskerfi. Við tryggjum réttindi sjúkratryggðra og aðgengi að góðri og hagkvæmri heilbrigðisþjónustu með það markmið að leiðarljósi að vernda heilbrigði og jafnan aðgang að heilbrigðisþjónustu óháð efnahag. Sjúkratryggingar vinna í verkefnamiðuðu vinnuumhverfi þar sem rík áhersla er lögð á góðan aðbúnað starfsmanna.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Almenn afgreiðsla og upplýsingagjöf til einstaklinga og veitenda heilbrigðisþjónustu

  • Verkefni tengd þjónustu við viðskiptavini og starfsemi innan SÍ

  • Önnur tilfallandi verkefni

Hæfniskröfur

  • Reynsla af samskiptum og þjónustu við einstaklinga kostur

  • Góð almenn tölvukunnátta

  • Gott vald á íslenskri tungu

  • Góð enskukunnátta æskileg

  • Önnur tungumálakunnátta er kostur

  • Jákvætt viðmót, lipurð í samskiptum og rík þjónustulund

  • Frumkvæði, áhugi og vönduð vinnubrögð

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.

Umsókn þarf að fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi er kostur. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni eru hvattir til að sækja um starfið.

Sótt er um starfið á Starfatorgi ríkisins á www.starfatorg.is. Öllum umsóknum verður svarað þegar niðurstaða um ráðningu liggur fyrir. Ráðning tekur mið af jafnréttisáætlun stofnunarinnar. Umsókn gildir í 6 mánuði frá lokum umsóknarfrests. Upplýsingar um stofnunina má finna á heimasíðu hennar www.sjukra.is.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 20.04.2026

Nánari upplýsingar veitir

Hólmfríður Halldórsdóttir

rekstrarstjóri Þjónustumiðstöðvar

Tölvupóstur: holmfridur.halldorsdottir@sjukra.is

Þjónustuaðili

Sjúkra­trygg­ingar

Upplýsingar um starf

Starf

Sumarstarf - Fulltrúi í Þjónustumiðstöð

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

10.04.2026

Umsóknarfrestur

20.04.2026