Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Doktorsnemi við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Viðfangsefni andleg heilsa og félagsleg vellíðan

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

16.04.2026

Umsóknarfrestur

04.05.2026

Doktorsnemi við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Viðfangsefni andleg heilsa og félagsleg vellíðan

Laust er til umsóknar fullt starf doktorsnema við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Doktorsneminn mun taka þátt í rannsóknarverkefni sem nýlega hlaut styrk, til þriggja ára, úr Rannsóknasjóði Íslands. Rannsóknarverkefnið ber heitið Langtímarannsókn á andlegri heilsu, félagslegri vellíðan, líkamlegum þroska og afkastagetu ungra knattspyrnustúlkna (e. Breaking Barriers: A Longitudinal Study of Mental Health, Social Well-Being, Physical Development and Performance in Female Youth Soccer Players). Viðfangsefni doktorsnemans verður andleg heilsa og félagsleg vellíðan.

Rannsóknarverkefnið er hluti af stærra verkefni sem Háskóli Íslands leiðir og ber heitið Stúlkur, Knattspyrna og Rannsókn á Atgervi (SKORA) og er eitt fárra sem skoðar ítarlega samspil andlegrar, félagslegrar og líkamlegrar heilsu, þroska og íþróttaiðkunar meðal stúlkna á kynþroskaskeiði.

Doktorsverkefnið felst í áframhaldandi langtímarannsókn þar sem þátttakendum verður fylgt eftir við 14 og 16 ára aldur. Markmiðið er að skoða hvernig andleg vellíðan (t.d. sjálfsmynd og líkamsímynd), félagslegir þættir (t.d. tengslamyndun og stuðningur), líkamleg afkastageta og líkamssamsetning þróast yfir unglingsárin og hvernig þessir þættir tengjast frammistöðu, meiðslahættu og brottfalli úr íþróttum.

Rannsóknarverkefnið byggir bæði á huglægum og hlutlægum mælingum, þar á meðal spurningalistum, frammistöðuprófum, líkamsmælingum og hreyfi- og svefnmælingum. Sérstök áhersla er lögð á að greina langtímaspár fyrir áframhaldandi þátttöku í íþróttum og verndandi þætti á borð við sjálfstraust, tengslamyndun og heilbrigða þjálfunarhegðun.

Rannsóknarverkefnið er unnið af teymi rannsakenda við Háskóla Íslands í samvinnu við erlendra fagaðila. Frá Háskóla Íslands: Dr. Rúna Stefánsdóttir, lektor, Dr. Vaka Rögnvaldsdóttir, dósent, Dr. Ársæll Már Arnarsson, prófessor, Dr. Erlingur Jóhannsson, prófessor og Dr. G. Sunna Gestsdóttir, dósent. Frá Western Norway University of Applied Science, Bergen, Noregi: Dr. Hilde Gundersen, dósent. Frá Colorado State University: Dr Josiane Broussard, dósent.

Leiðsagnarteymi doktorsnemans mynda þau Ársæll Már Arnarsson, prófessor, Rúna Sif Stefánsdóttir, lektor og Vaka Rögnvaldsdóttir, dósent, í samstarfi við aðra í rannsóknarteyminu.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Þátttaka í rannsóknavinnu í samstarfi við leiðbeinendur

  • Gagnasöfnun og gagnagreining

  • Skrif fræðigreina og miðlun á rannsóknaniðurstöðum

Hæfniskröfur

  • Meistarapróf í íþrótta- og heilsufræði, sálfræði, lýðheilsufræði, mennta- eða félagsvísindum eða tengdum fræðasviðum

  • Reynsla af vinnu við gagnasöfnun

  • Reynsla af vinnu með gagnabanka

  • Þekking á megindlegum rannsóknaraðferðum er æskileg

  • Íslensku og enskukunnátta, bæði í töluðu og rituðu máli

  • Reynsla af skrifum fræðilegs texta er kostur

  • Hæfni til að vinna bæði sjálfstætt sem og í teymi

  • Samskiptahæfni og lipurð í mannlegum samskiptum

Ráðning er háð því að umsækjandi sæki formlega um doktorsnám við Menntavísindasvið Háskóla Íslands og að umsóknin sé samþykkt af doktorsnámsnefnd sviðsins.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.

Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:

  • Greinargerð, þar sem umsækjandi lýsir hvernig hann uppfyllir skilyrði starfsins, hvers vegna hann hefur áhuga á að vinna verkefnið og hugmyndum sínum um framlag til verkefnisins (hámark 2 blaðsíður)

  • Ferilskrá

  • Staðfest afrit af prófskírteinum

  • Upplýsingar um tvo umsagnaraðila þar sem fram koma tengsl við umsækjanda, netfang og símanúmer

Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknafrests.

Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.

Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.

Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt í 400 námsleiðir á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.

Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi.

Nánar um Háskóla Íslands, fræðasvið hans og deildir

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 04.05.2026

Nánari upplýsingar veitir

Rúna Sif Stefánsdóttir

Lektor

Tölvupóstur: runasif@hi.is

Lára Rún Sigurvinsdóttir

mannauðsstjóri

Tölvupóstur: lararun@hi.is

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Doktorsnemi við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Viðfangsefni andleg heilsa og félagsleg vellíðan

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

16.04.2026

Umsóknarfrestur

04.05.2026