
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Sérnámsstöður í heimilislækningum á HSU
Staðsetning
Suðurland
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
10.04.2026
Umsóknarfrestur
20.04.2026
Sérnámsstöður í heimilislækningum á HSU
Heilbrigðisstofnun Suðurlands auglýsir lausar stöður sérnámslækna í heimilislækningum við heilsugæsluna á Selfossi og Heilsugæsluna í Vestmannaeyjum. Námið er byggt á marklýsingu fyrir sérnám í heimilislækningum og jafnframt taka sérnámslæknar vikulega þátt í fræðilegu námi og fyrirlestrum með öðrum sérnámslæknum í Reykjavík (hálfur dagur á viku).
Um er að ræða 100% starf og er næsti yfirmaður er yfirlæknir heilsugæslu við starfsstöðina.
Frábært tækifæri til að öðlast víðtæka reynslu með fjölbreyttu starfi heilsugæslu á landsbyggðinni.
Heilbrigðisstofnun Suðurlands veitir heilsugæslu-, sjúkrahúss-, bráða- og öldrunarþjónustu, auk þess að annast sjúkraflutninga. Þjónustusvæðið nær frá Þorlákshöfn í vestri til Hafnar í austri.
Hlutverk HSU er að móta, þróa og útfæra heilbrigðisþjónustu í umdæminu og tryggja íbúum Suðurlands og öðrum þjónustuþegum jafnan aðgang að bestu heilbrigðisþjónustu sem völ er á hverju sinni.
Þjónustumarkmið HSU byggja á gildum okkar um fagmennsku, virðingu og samvinnu. Velferð og þarfir þjónustuþega eru okkar leiðarljós.
Helstu verkefni og ábyrgð
Almennar lækningar, heilsuvernd og leiðbeiningar til skjólstæðinga og aðstandenda
Almenn vaktþjónusta og bráðaþjónusta sem tengist heilsugsælu
Virkur þáttakandi í uppbyggingu og framþróun heilsugæslu ásamt fræðslu og vísindastarfi á stöðugt stækkandi heilbrigðisstofnun
Þátttaka í verkefnum starfsstöðvar, þar sem áhersla er lögð á nýsköpun og framþróun
Hæfniskröfur
Íslenskt lækningaleyfi er skilyrði
Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
Hæfni í tjáningu í ræðu og riti
Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
Áreiðanleiki, jákvæðni og árangursmiðað viðhorf
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.
Störfin veitast samkvæmt nánara samkomulagi.
Kennsluráð sérnámsins innan ÞÍH metur hæfi til formlegs sérnáms og getur einnig metið fyrri reynslu úr öðru starfsnámi.
Um er að ræða 5 ára sérnám þar sem þrjú ár fara fram á heilsugæslunni á Selfossi eða Vestmannaeyjum og tvö ár á sjúkrasviði LSH eða HSU í samráði við kennslustjóra sérnámsins.
Marklýsing sérnáms í heimilislækningum
Umsókninni þurfa að fylgja staðfestar upplýsingar um menntun, starfsleyfi, fyrri störf.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 20.04.2026
Nánari upplýsingar veitir
Nanna Rún Sigurðardóttir
Tölvupóstur: nanna.r.sigurdardottir@hsu.is

Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Sérnámsstöður í heimilislækningum á HSU
Staðsetning
Suðurland
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
10.04.2026
Umsóknarfrestur
20.04.2026