Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Vestur­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Yfirhjúkrunarfræðingur á heilsugæslu HVE Hólmavík

Staðsetning

Vesturland

Starfshlutfall

50-100%

Starf skráð

10.04.2026

Umsóknarfrestur

20.04.2026

Yfirhjúkrunarfræðingur á heilsugæslu HVE Hólmavík

Laus er til umsóknar staða yfirhjúkrunarfræðings á heilsugæslu Heilbrigðisstofnunar Vesturlands á Hólmavík

Starfshlutfall er 50-100% og er staðan laus.

Næsti yfirmaður er framkvæmdastjóri hjúkrunar HVE.

Frítt húsnæði er í boði ásamt vissum sveigjanleika í starfi eftir samkomulagi.

Möguleiki er að ráða inn tvo hjúkrunarfræðinga í starfið og er þá starfað viku í senn með 5 daga vinnuskyldu.

Helstu verkefni og ábyrgð

Yfirhjúkrunarfræðingur ber faglega og fjárhagslega ábyrgð á hjúkrunarþjónustu sem veitt er. Ber ábyrgð á, skipuleggur og stjórnar allri hjúkrunarþjónustu á heilsugæslunni, hjúkrunarheimili og heimahjúkrun á Hólmavík og ber ábyrgð á að gæði hjúkrunar séu tryggð. Vinnur í teymisvinnu með öðrum starfsmönnum HVE Hólmavík.

Yfirhjúkrunarfræðingur starfar samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu nr. 40/2007, lögum um heilbrigðisstarfsmenn nr. 34/2012, lögum um réttindi sjúklinga nr. 74/1997 og lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.

Hæfniskröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi er skilyrði og a.m.k. 5 ára starfsreynsla við heilsugæsluhjúkrun.

  • VIðbótarmenntun í heilsugæsluhjúkrun er kostur.

  • Viðbótarmenntun í stjórnun er kostur.

  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði

  • Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu af stjórnunarstörfum og starfsmannahaldi.

  • Góð tölvukunnátta.

  • Framúrskarandi færni í samskiptum og teymisvinnu er krafa.

Lögð er áhersla á frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og hæfileika í samskiptum og samvinnu

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Umsókn skal fylgja

  • Ferilsskrá

  • Starfsleyfi ásamt afritum af námskeiðum.

  • Starfið felur í sér stjórnunarstörf á heilsugæslunni, skólahjúkrun, ung- og smábarnavernd og almenna hjúkrunarmóttöku.

  • Starfið felur í sér stjórnunarstörf og ábyrgð á hjúkrunarheimili HVE Hólmavík og heimahjúkrun.

Sækja skal um á starfatorg.is - Öllum umsóknum verður svarað.

HVE heimilar sér að hafna öllum umsóknum

Starfshlutfall er 50-100%

Umsóknarfrestur er til og með 20.04.2026

Nánari upplýsingar veitir

Hulda Gestsdóttir

Tölvupóstur: hulda.gestsdottir@hve.is

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Vestur­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Yfirhjúkrunarfræðingur á heilsugæslu HVE Hólmavík

Staðsetning

Vesturland

Starfshlutfall

50-100%

Starf skráð

10.04.2026

Umsóknarfrestur

20.04.2026