
Þjónustuaðili
Fjölbrautaskólinn í Garðabæ
Upplýsingar um starf
Starf
Sérkennari á sérnámsbraut (starfsbraut) frá 1. ágúst 2026
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
10.04.2026
Umsóknarfrestur
24.04.2026
Sérkennari á sérnámsbraut (starfsbraut) frá 1. ágúst 2026
Fjölbrautaskólinn í Garðabæ óskar eftir að ráða sérkennara á sérnámsbraut ( starfsbraut ) frá 1. ágúst 2026
FG er framsækinn og traustur framhaldsskóli sem fagnaði 40 ára afmæli árið 2024. Nemendur eru um 700 og starfsfólk skólans um 70 talsins. Skólinn býður upp á fjölbreytt og gott nám í þriggja anna kerfi á sjö brautum til stúdentsprófs auk sérnámsbrautar og starfsmannahópurinn er kraftmikill og metnaðarfullur. Áhersla er lögð á lýðræðislega kennslu- og stjórnunarhætti og góðan skólabrag. Áhugasömum um starfið bent á að kynna sér vel þær stefnur og áætlanir sem skólinn hefur sett sér en starfsfólk skólans skal vinna í takti við þær áherslur.
Helstu verkefni og ábyrgð
Leitað er eftir vel menntuðum kennara með próf í sérkennslufræðum til að kenna á sérnámsbraut skólans. Sérstaklega er horft til þess að kennari sýni frumkvæði í starfi, góða samskiptahæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum og sé hæfur til að skapa faglegt og hvetjandi námsumhverfi og taka þátt í faglegu samstarfi kennara og starfsfólks við skólann.
Hæfniskröfur
Umsækjandi þarf að hafa réttindi til að nota starfsheitið kennari (leyfisbréf kennara) og uppfylla kröfur um menntun og hæfni skv. lögum nr. 95/2019 . Þá þarf kennari að búa yfir faglegum metnaði, jákvæðu hugarfari og frumkvæði og hafa áhuga á að starfa í öflugu skólasamfélagi. Góð samskipta- og skipulagshæfni er mikilvæg.Við ráðningu verður miðað við, að sá er starfið hlýtur falli sem best að aðstæðum og þörfum skólans.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kennarasamband Íslands hafa gert.
Umsóknum skal skilað rafrænt í gegnum Starfatorg (www.starfatorg.is) með tilheyrandi fylgigögnum, s.s. leyfisbréfi, ferilskrá, prófskírteinum og öðrum upplýsingum sem umsækjanda þykir skipta máli.
Í umsókn þurfa að koma fram upplýsingar um menntun (staðfest afrit af prófskírteinum), afrit af leyfisbréfi til að nota starfsheitið kennari, upplýsingar um fyrri störf og tilgreina skal meðmælendur. Ákvörðun um ráðningu byggir á innsendum gögnum og viðtölum.
Skólameistari mun óska eftir umboði til að kalla eftir upplýsingum úr sakaskrá áður en gengið er frá ráðningu.
Við ráðningar í störf við Fjölbrautaskólann í Garðabæ er tekið mið af jafnréttisstefnu skólans.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 24.04.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Fjölbrautaskólinn í Garðabæ
Upplýsingar um starf
Starf
Sérkennari á sérnámsbraut (starfsbraut) frá 1. ágúst 2026
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
10.04.2026
Umsóknarfrestur
24.04.2026