Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Matvæla­stofnun

Upplýsingar um starf

Starf

Sérgreinadýralæknir fisksjúkdóma

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

09.04.2026

Umsóknarfrestur

29.04.2026

Sérgreinadýralæknir fisksjúkdóma

Matvælastofnun leitar af metnaðarfullum sérgreinadýralækni til að slást í fiskeldis teymið okkar, tækifæri til að móta og skapa framtíð í fiskeldisdeild.

Markmið fiskeldisdeildar er að stuðla að ábyrgu lagareldi og standa vörð um heilbrigði og velferð lagardýra. Traust, gagnsæi og fagleg umgjörð er lykilatriði til að greinin fái að vaxa og dafna í sátt við umhverfið og samfélagið.

Lagareldi er fjölbreytt atvinnugrein með mörgum undirgreinum, s.s sjókvíaeldi, landeldi, úthafseldi og þörungaeldi. Lagareldi á sér langa sögu á Íslandi en hefur vaxið hratt síðasta áratuginn, fyrst og fremst í sjókvíaeldi á laxi. Miðað við núverandi áform getur lagareldi orðið ný stoð í íslenska hagkerfinu og mikilvægt að greinin þróist og vaxi með sjálfbærum hætti.

Til að ná háleitum markmiðum þarf frábæra liðsheild, þess vegna viljum við fá í okkar hóp metnaðarfullan og skapandi einstakling sem hefur áhuga á að kynnast og þróa framtíð fiskeldis. Við tökum vel á móti nýju starfsfólki, þjálfum það og leiðbeinum um allt sem snýr að fiskeldi og því er reynsla af fiskeldi/lagareldi ekki nauðsynleg! Starfið er á starfsstöð Matvælastofnunar á höfuðborgarsvæðinu.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Sinnir eftirliti í fiskeldisstöðvum

  • Sýnatökur í fiskeldi

  • Úrvinnsla umsókna um inn- og útflutning dýra og dýraafurða

  • Útgáfa heilbrigðisvottorða

  • Önnur verkefni tengd inn- og útflutning

  • Úrvinnsla gagna og miðlun niðurstaðna

  • Aðkoma að uppbyggingu fiskeldisdeildar

  • Önnur tilfallandi verkefni fiskeldisdeildar

  • Hefur enskufærni málfar og ritun C1 skv. samevrópska tungumálarammanum.

  • Hefur íslenskufærni málfar og ritun B2 skv. samevrópska tungumálarammanum.

Hæfniskröfur

  • Dýralæknismenntun og réttindi til dýralækninga

  • Sérstök þekking á sjúkdómum eldisfiska kostur

  • Áhugi á að læra gagnaúrvinnslu

  • Nákvæmni, frumkvæði, lausnarmiðuð nálgun og sjálfstæði í starfi

  • Geta til að vinna undir álagi, þrautseigja og aðlögunarhæfni

  • Góðir samskiptahæfileikar og hæfni til að vinna í teymi

  • Hæfni til tjáningar í ræðu og riti á ensku er skilyrði, tök á norðurlandamáli kostur

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Dýralæknafélag Íslands hafa gert.

Um er að ræða 100% starf sérgreinadýralæknis fisksjúkdóma. Vanti umsækjanda sérhæfingu er í boði að sækja sér hana með stuðningi stofnunarinnar.

Með umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá, afrit af prófskírteinum og leyfisbréfi, tilnefning tveggja meðmælenda og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið.

Starfið hentar öllum kynjum sem eru með hreint sakavottorð. Öllum umsóknum verður svarað þegar ráðning liggur fyrir. Vakin er athygli á því að umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsækjandi sækir um starf. Í boði er 36 stunda vinnuvika, fjarvinnumöguleikar allt að 2 daga í viku og ýmis hlunnindi eins og símastyrkur, heilsuræktarstyrkur ofl. Einnig búum við að öflugu starfsmannafélagi sem skipuleggur fjölbreytta viðburði.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 29.04.2026

Nánari upplýsingar veitir

Karl Steinar Óskarsson

deildarstjóri fiskeldisdeildar

Tölvupóstur: karl.oskarsson@mast.is

Sími: 5304800

Þjónustuaðili

Matvæla­stofnun

Upplýsingar um starf

Starf

Sérgreinadýralæknir fisksjúkdóma

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

09.04.2026

Umsóknarfrestur

29.04.2026