
Þjónustuaðili
Hafrannsóknastofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Starf á fjármálasviði
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
08.04.2026
Umsóknarfrestur
20.04.2026
Starf á fjármálasviði
Hafrannsóknastofnun leitar að metnaðarfullum einstaklingi í fullt starf á fjármálasviði stofnunarinnar. Um er að ræða fjölbreytt ábyrgðarstarf fyrir einstakling sem er nákvæmur, lipur í mannlegum samskiptum, hefur vilja og hæfni til að starfa í teymi, tilbúinn að tileinka sér nýjungar og hefur metnað til að ná góðum árangri.
Helstu verkefni og ábyrgð
Færsla bókhalds, afstemmingar og uppgjör fyrir stofnunina.
Uppgjör og skil virðisauka.
Ábyrgð á yfirsýn yfir kostnaðarskýrslukerfi.
Skil launatengdra gjalda til skattyfirvalda.
Umsjón með ferðakerfi; yfirferð yfir ferðabeiðnir, gerð ferðauppgjöra og bókun ferðakostnaðar.
Taka þátt í þróa verklag í verkefnum sviðsins í samræmi við lög og önnur sett viðmið sem í gildi eru hverju sinni.
Taka þátt í mánaðarlegri útgáfu fjárhagsupplýsinga fyrir haghafa í samstarfi við aðra starfsmenn og stjórnendur.
Miðlun upplýsinga og fræðsla til starfsfólk.
Þátttaka í gerð og þróun á mælaborði fyrir stjórnendur og starfsmenn.
Þátttaka í gerð árshlutauppgjöra og ársreiknings.
Þátttaka í stefnumótunar- og umbótastarfi.
Önnur verkefni sem til falla eftir atvikum.
Hæfniskröfur
Góð almenn menntun eða haldbær reynsla sem nýtist í starfi, háskólapróf eða viðurkenndur bókari er kostur.
Lágmark 4 ára starfsreynsla sem nýtist í starfi
Jákvætt viðmót, samstarfsvilji og lausnamiðuð nálgun.
Ríkir samskiptahæfileikar, þjónustulund og hæfni til að vinna í teymi.
Gagnrýnin hugsun, greiningarhæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
Marktæk reynsla af vinnu við fjárhagskerfi, Excel og almenn góð stafræn hæfni.
Þekking og reynsla á notkun fjárhagskerfa ríkisins (Orri) er kostur.
Góð íslensku og enskukunnátta í töluðu og rituðu máli.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Í boði er frábært tækifæri fyrir einstakling sem vill
Vera hluti af samheldnu teymi sem hefur metnað til skara fram úr á sínu sviði.
Umhverfi sem hvetur til frumkvæðis, umbóta og nýsköpunar með umboð og stuðning til að ná árangri í starfi.
Umsókninni skal fylgja:
Ítarleg ferilskrá að hámarki 2 bls
Afrit af prófskírteinum
Kynningarbréf þar sem fram kemur bakgrunnur umsækjenda og ástæða þess að sótt er um starfið.
Nöfn tveggja meðmælenda ásamt samskiptaupplýsingum þeirra
Athugið:
Ófullnægjandi umsóknir eru ekki teknar til greina.
Hafrannsóknarstofnun áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.
Umsókn getur gilt í sex mánuði eftir að umsóknarfresti lýkur.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Gerð er krafa um að umsækjendur hafi hreint sakavottorð og ökuréttindi.
Við ráðningu í störf við Hafrannsóknastofnun er tekið mið af jafnréttisstefnu Hafrannsóknastofnunar.
Sótt er um í gegnum starfatorg
Um stofnunina
Hafrannsóknastofnun, rannsókna- og ráðgjafarstofnun hafs og vatna, heyrir undir Atvinnuvegaráðuneytið og er stærsta rannsóknastofnun landsins á sviði hafs- og vatnarannsókna. Stofnunin gegnir auk þess ráðgjafahlutverki um sjálfbæra nýtingu og verndun auðlinda hafs og vatna. Starfsemin felst einkum í fjölbreyttum rannsóknum og ráðgjafastarfi sem oft felur í sér innlent og alþjóðlegt samstarf við háskóla eða aðrar rannsóknastofnanir.. Stofnunin rekur auk höfuðstöðvar í Hafnarfirði starfsstöðvar vítt og breytt um landið, tilraunaeldisstöð og tvö rannsóknaskip. Hjá stofnuninni starfa að jafnaði um 200 manns í fjölbreyttum störfum.
Gildi Hafrannsóknastofnunar eru: Þekking - Samvinna - Þor
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 20.04.2026
Nánari upplýsingar veitir
Guðmundur I Bergþórsson
Sviðsstjóri Fjármála og upplýsingatækni
Tölvupóstur: gudmundur.i.bergthorsson@hafogvatn.is
Sími: 5752024
Sólveig Lilja Einarsdóttir
Sviðsstjóri Mannauðs og miðlunannar
Tölvupóstur: solveig.lilja.einarsdottir@hafogvatn.is
Sími: 5752046

Þjónustuaðili
Hafrannsóknastofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Starf á fjármálasviði
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
08.04.2026
Umsóknarfrestur
20.04.2026