
Þjónustuaðili
Samgöngustofa
Upplýsingar um starf
Starf
Sumarafleysing í mötuneyti Samgöngustofu
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
08.04.2026
Umsóknarfrestur
20.04.2026
Sumarafleysing í mötuneyti Samgöngustofu
Samgöngustofa leitar að duglegri, jákvæðri og þjónustulipri manneskju til sumarstarfs í mötuneyti stofnunarinnar. Starfið er tilvalið fyrir áhugamanneskju um góðan mat og skipulagða vinnu í skemmtilegu og vinalegu starfsumhverfi.
Um er að ræða 100% starf yfir sumartímann (júní, júlí og ágúst), með möguleika á nánara tímabili eftir samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Aðstoð við dagleg verkefni í eldhúsi, svo sem undirbúning og framreiðslu hádegismatar og fundarkaffis.
Uppvask og frágangur.
Þrif í eldhúsi og mötuneyti.
Umsjón með kaffistofum starfsfólks.
Önnur tilfallandi verkefni sem tengjast mötuneyti og kaffistofum.
Hæfniskröfur
Áhugi á mat og matseld.
Reynsla sem nýtist í starfi, t.d. úr eldhúsi, mötuneyti, kaffihúsi eða sambærilegu umhverfi, er kostur.
Góð þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum.
Sjálfstæði, frumkvæði og vönduð vinnubrögð.
Snyrtimennska og stundvísi.
Góð færni í íslensku.
Í boði er fjölbreytt og skemmtilegt sumarstarf, góð starfsaðstaða og vinalegt vinnuumhverfi.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Öllum umsóknum skal fylgja starfsferilskrá. Í ráðningarferlinu verður óskað eftir að umsækjendur skili sakavottorði. Hafi umsækjandi verið fundinn sekur um refsiverða háttsemi getur það orðið til þess að viðkomandi telst ekki hæfur til að gegna starfi hjá stofnuninni. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Samgöngustofa áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum. Samgöngustofa hvetur öll kyn til að sækja um starfið.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 20.04.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Samgöngustofa
Upplýsingar um starf
Starf
Sumarafleysing í mötuneyti Samgöngustofu
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
08.04.2026
Umsóknarfrestur
20.04.2026