Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Framhalds­skólinn í Vestmanna­eyjum

Upplýsingar um starf

Starf

Sérkennari

Staðsetning

Suðurland

Starfshlutfall

50%

Starf skráð

09.04.2026

Umsóknarfrestur

20.04.2026

Sérkennari

Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum leitar eftir sérkennara frá 1. ágúst.

Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum hefur sett sér stefnu um fjölbreytta kennsluhætti þar sem áhersla er samvinnu og á gæði náms.

Sérkennari vinnur sjálfstætt og í samstarfi við annað starfsfólk skólans.

Helstu verkefni og ábyrgð

Sérkennari starfar eftir starfslýsingu kennara sem er ítarlega skilgreind í gæðahandbók á heimasíðu skólans, www.fiv.is.

Helstu verkefni eru:

  • Sérkennsla

  • Að skapa hvetjandi námsumhverfi fyrir nemendur

  • Þátttaka í faglegu starfi og starfsþróun með stöðugar umbætur í skólastarfi að leiðarljósi

Hæfniskröfur

  • Sérkennari skal uppfylla kröfur um menntun og hæfni kennara sem kveðið er á um í lögum nr. 95/2019 og hafa leyfisbréf sem kveður á um rétt til að nota starfsheitið kennari

  • Sérkennari skal hafa lokið háskólagráðu í sérkennslu eða sambærilegu námi

  • Reynsla af sérkennslu er æskileg

  • Tölvufærni er nauðsynleg

  • Góðir samstarfshæfileikar, rík þjónustulund og áhugi á að vinna með ungu fólki

  • Faglegur metnaður, góðir skipulagshæfileikar og frumkvæði

  • Geta til að vinna bæði sjálfstætt og í samstarfi við aðra

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kennarasamband Íslands hafa gert.

Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem ríkið hefur gert við félag framhaldsskólakennara og stofnanasamningi FÍV.

Í samræmi við jafnréttisáætlun skólans er fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um starfið.

Umsóknum skal fylgja ítarleg starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi með rökstuðningi fyrir hæfni og sýn á starfið. Einnig skulu fylgja leyfisbréf, prófskírteini. Tilgreina skal meðmælendur.

Starfshlutfall er 50%

Umsóknarfrestur er til og með 20.04.2026

Nánari upplýsingar veitir

Helga Kristín Kolbeins

Tölvupóstur: helgak@fiv.is

Sími: 4881070

Thelma Björk Gísladóttir

Tölvupóstur: thelma@fiv.is

Sími: 4881070

Þjónustuaðili

Framhalds­skólinn í Vestmanna­eyjum

Upplýsingar um starf

Starf

Sérkennari

Staðsetning

Suðurland

Starfshlutfall

50%

Starf skráð

09.04.2026

Umsóknarfrestur

20.04.2026