
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Sumarstörf á HSU - Móttökuritari Höfn í Hornafirði
Staðsetning
Suðurland
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
09.04.2026
Umsóknarfrestur
20.04.2026
Sumarstörf á HSU - Móttökuritari Höfn í Hornafirði
Heilbrigðisstofnun Suðurlands óskar eftir að ráða móttökuritara sem er jákvæður, sjálfstæður og tilbúinn að takast á við fjölbreytt verkefni með bros á vör. Um er að ræða 100% sumarstarf á heilsugæsluna á Höfn í Hornafirði.
Á Heilsugæslunni á Höfn í Hornafirði starfar samhentur hópur sem hefur velferð og þarfir þjónustþega að leiðarljósi.
HSU veitir heilsugæslu-, sjúkrahús- og öldrunarþjónustu ásamt því að annast sjúkraflutninga. Þjónustusvæðið nær frá Þorlákshöfn í vestri til Hafnar í austri.
Hlutverk HSU er að móta, þróa og útfæra heilbrigðisþjónustu í umdæminu og tryggja íbúum Suðurlands og öðrum þjónustuþegum jafnan aðgang að bestu heilbrigðisþjónustu sem völ er á hverju sinni.
Þjónustumarkmið HSU byggja á gildum okkar um fagmennsku, virðingu og samvinnu.
Helstu verkefni og ábyrgð
Móttaka, afgreiðsla og samskipti við skjólstæðinga
Símsvörun, ýmiss konar umsýsla og skráning gagna auk samskipta við aðrar deildir HSU
Hæfniskröfur
Stúdentspróf eða sambærileg menntun æskileg
Starfið krefst hæfni og lipurðar í samskiptum, trúmennsku og nákvæmni í vinnubrögðum
Viðkomandi þarf að vera þjónustulundaður og hafa tölvukunnáttu
Viðkomandi þarf að hafa gott vald á íslensku máli og geta átt góð tjáskipti á ensku.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag opinberra starfsmanna á Suðurlandi hafa gert.
Um dagvinnu er að ræða.
Starfið veitist frá miðjum júní til 1.ágúst eða eftir samkomulagi.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 20.04.2026
Nánari upplýsingar veitir
Jóna Bára Jónsdóttir
Tölvupóstur: jona.b.jonsdottir@hsu.is

Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Sumarstörf á HSU - Móttökuritari Höfn í Hornafirði
Staðsetning
Suðurland
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
09.04.2026
Umsóknarfrestur
20.04.2026