Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Suður­nesja

Upplýsingar um starf

Starf

Framkvæmdastjóri hjúkrunar á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja

Staðsetning

Suðurnes

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

08.04.2026

Umsóknarfrestur

20.04.2026

Framkvæmdastjóri hjúkrunar á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja

Heilbrigðisstofnun Suðurnesja auglýsir laust til umsóknar starf framkvæmdastjóra hjúkrunar. Leitað er eftir öflugum og framsýnum leiðtoga sem hefur heildstæða sýn á mikilvægi hjúkrunar og metnað til að leiða faglega framþróun hjúkrunar í samstarfi við forstjóra. Framkvæmdastjóri hjúkrunar heyrir undir forstjóra og er í framkvæmdastjórn spítalans. Um er að ræða krefjandi og fjölbreytt starf þar sem áhersla er lögð á faglega forystu í hjúkrun sem og daglegan rekstur.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Leiða faglegt starf í samræmi við stefnu HSS til ársins 2030

  • Leiðandi í eflingu mannauðs hjúkrunarfræðinga, ljósmæðra, sjúkraliða og annarra heilbrigðisstétta

  • Leiðandi í eflingu öryggismenningar, gæðum þjónustu og stöðugum umbótum innan hjúkrunar

  • Þróun og innleiðing gæðaviðmiða í hjúkrun

  • Innleiða nýjungar og breytingar sem stuðla að framþróun starfsemi HSS

  • Samvinna við aðra stjórnendur og heilbrigðisstéttir

  • Ábyrgð á rekstri, áætlanagerð og eftirfylgni í samvinnu við framkvæmdastjórn

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun í hjúkrunarfræði og gilt hjúkrunarleyfi

  • Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi

  • Farsæl stjórnunar- og rekstrarreynsla innan heilbrigðisþjónustu

  • Hæfni til að móta jákvætt vinnuumhverfi og byggja sterka liðsheild

  • Framúrskarandi leiðtoga- og samskiptahæfileikar

  • Frumkvæði og stefnumótandi hugsun

  • Frumkvæði og metnaður til að ná árangri

  • Góð íslenska í ræðu og riti er skilyrði

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Umsækjendur eru beðnir að skila ítarlegri náms- og starfsferilskrá, afriti af prófskírteinum og starfsleyfi ásamt kynningarbréfi, er innihalda framtíðarsýn umsækjanda og rökstuðning fyrir hæfni til að gegna stöðunni.

Viðtöl verða tekin við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum. Forstjóri tekur ákvörðun um ráðningu í starfið. HSS er öflugur vinnustaður þar sem starfa um 400 manns. Hlutverk HSS er að auka heilbrigði íbúa á Suðurnesjum og framtíðarsýnin er að vera heilbrigðisstofnun til fyrirmyndar.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSS við ráðningar á stofnunina. Öllum umsóknum verður svarað um leið og ráðið hefur verið í starfið.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út,sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 20.04.2026

Nánari upplýsingar veitir

Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir

Forstjóri

Tölvupóstur: gudlaug.rakel.gudjonsdottir@hss.is

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Suður­nesja

Upplýsingar um starf

Starf

Framkvæmdastjóri hjúkrunar á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja

Staðsetning

Suðurnes

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

08.04.2026

Umsóknarfrestur

20.04.2026