
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Skurðhjúkrunarfræðingur á göngudeild augnsjúkdóma
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
40-100%
Starf skráð
08.04.2026
Umsóknarfrestur
27.04.2026
Skurðhjúkrunarfræðingur á göngudeild augnsjúkdóma
Landspítali - Eiríksgata 5
Við sækjumst eftir metnaðarfullum skurðhjúkrunarfræðingi í spennandi dagvinnustarf á göngudeild augnsjúkdóma. Göngudeildin er miðstöð augnsjúkdóma á Íslandi og samanstendur af göngudeild, dagdeild og sérhæfðum skurðstofum.
Hvað býðst þér?
Fjölbreytt og tæknilegt starf þar sem þú:
Starfar á sérhæfðum skurðstofum við augnaðgerðir
Færð einstaklingsmiðaða starfsþjálfun og skipulagða fræðslu
Getur fengið stuðning við frekari starfsþjálfun með námsheimsókn eða sérnám í augnhjúkrun erlendis
Starfar í sérhæfðu umhverfi, í þverfaglegu samstarfi þar sem ríkir góður starfsandi
Vinnuskilyrði:
Dagvinna, allt að 100% starfshlutfall (40-100%)
36 stunda vinnuvika í fullri dagvinnu
Betra jafnvægi milli vinnu og einkalífs
Starfið er laust nú þegar eða eftir samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Skurðhjúkrun: Hjúkrun aðgerðarsjúklinga og aðstoð við augnaðgerðir og lyfjagjafir í augu
Móttökuþjónusta: Fræðsla, forskoðanir, sjónmælingar, sjónsviðsmælingar og augnbotnamyndatökur
Undirbúningur aðgerða og önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur
Nauðsynlegt:
Íslenskt hjúkrunarleyfi
Viðbótarnám í skurðhjúkrun
Góða íslenskukunnáttu
Við metum:
Reynslu af skurðhjúkrun
Faglegan metnaður og frumkvæði
Góða samskiptahæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
Áhuga á þróun verkferla og gæðaverkefna
Reynslu af hjúkrun augnsjúklinga
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Hjúkrunarfræðingur, hjúkrun, dagvinna
Tungumálahæfni: Íslenska 4/5
Staðsetning: Eiríksgata 5, 101 Reykjavík
Starfshlutfall er 40-100%
Umsóknarfrestur er til og með 27.04.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Skurðhjúkrunarfræðingur á göngudeild augnsjúkdóma
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
40-100%
Starf skráð
08.04.2026
Umsóknarfrestur
27.04.2026