Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Fjölbrauta­skóli Suður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Kennarar í rafeindavirkjun

Staðsetning

Suðurland

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

08.04.2026

Umsóknarfrestur

20.04.2026

Kennarar í rafeindavirkjun

Fjölbrautaskóli Suðurlands óskar eftir að ráða einn til tvo kennara í rafeindavirkjun frá 1. ágúst 2026. Um er að ræða 60 - 100% stöður í dagskóla og/eða kvöldskóla skólaárið 2026 -2027.

FSu er líflegur og skapandi vinnustaður með metnaðarfullu starfsfólki og góðum starfsanda. Um 150 starfa við skólann og nemendur eru yfir 1000. Skólinn státar af fjölbreyttu námsframboði en yfir 20 námsbrautir eru í boði; bóknám, verknám, listnám auk öflugra íþróttaakademía, hestabrautar og garðyrkjunáms á Reykjum. Unnið er markvisst eftir gildum skólans sem eru fjölbreytni, sköpun, upplýsing.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Kennarinn ber ábyrgð á undirbúningi, kennslu og námsmati í kennslugreinum sínum samkvæmt markmiðum aðal- og skólanámskrár.

  • Áhersla er á að skapa hvetjandi námsumhverfi meðal nemenda.

  • Tekur þátt í faglegu samstarfi, tileinkar sér nýjungar og sinnir starfsþróun.

  • Mikil áhersla er lögð á þétt og mikið samstarf meðal kennara á rafiðnbraut.

  • Vinnur önnur störf sem honum eru falin og samrýmast gildandi kjarasamningum, lögum og reglugerðum.

Hæfniskröfur

  • Meistaranám í rafeindavirkjun eða í skyldum greinum.

  • Leyfisbréf sem kveður á um rétt til að nota starfsheitið kennari skv. lögum nr. 95/2019.

  • Kennslureynsla í rafeindavirkjun er æskileg.

  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum, teymisvinnu og ríkur samstarfsvilji.

  • Áhugi á skólastarfi og vinnu með ungu fólki.

  • Faglegur metnaður, frumkvæði, öguð vinnubrögð og jákvætt hugarfar.

  • Góð tölvukunnátta og hæfni í notkun upplýsingatækni, m.a. Office365.

  • Hæfni til tjáningar í ræðu og riti á íslensku.

  • Viðkomandi þarf að falla að þeim starfsmannahópi sem fyrir er í skólanum.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kennarasamband Íslands hafa gert.

Umsókn skal fylgja afrit af prófskírteinum og leyfisbréfi, ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir því hvernig umsækjandi uppfyllir hæfnikröfur. Umsækjendur þurfa að skila inn hreinu sakavottorði skv. lögum nr. 92/2008. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út nema að umsækjandi ákveði annað.

Í samræmi við jafnréttisáætlun skólans er áhugasamt fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um starfið. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Öllum umsóknum verður svarað þegar ráðning liggur fyrir.

Upplýsingar um skólann má finna á www.fsu.is.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 20.04.2026

Nánari upplýsingar veitir

Soffía Sveinsdóttir

skólameistari

Tölvupóstur: soffia@fsu.is

Sími: 480-8100

Jóhann Snorri Bjarnason

fagstjóri

Tölvupóstur: johann.bjarna@fsu.is

Sími: 480-8100

Þjónustuaðili

Fjölbrauta­skóli Suður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Kennarar í rafeindavirkjun

Staðsetning

Suðurland

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

08.04.2026

Umsóknarfrestur

20.04.2026