
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Sérhæfður starfsmaður á brjóstamiðstöð
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
16.04.2026
Umsóknarfrestur
04.05.2026
Sérhæfður starfsmaður á brjóstamiðstöð
Við leitum að metnaðarfullum samstarfsmanni til að sinna sérhæfðum þjónustustörfum á göngudeild Brjóstamiðstöðvar.
Ef þú ert með áhuga á að vinna náið með skjólstæðingum okkar, ert þjónustulipur og með góða skipulags- og samskiptahæfni þá gæti þetta hentað þér.
Í boði er einstaklingsaðlögun undir leiðsögn reynds starfsfólks og gott starfsumhverfi. Starfshlutfall er 80-100%, unnið er í dagvinnu og er upphaf starfs 1. júní 2026 eða eftir samkomulagi.
Á Brjóstamiðstöð fer fram öflug starfsemi og starfar þar öflugt teymi sérfræðinga frá mörgum sérgreinum og fagstéttum. Þjónustan er í stöðugri þróun þar sem mikil áhersla er lögð á þjónustumiðaða nálgun og tæknivæðingu eininga innan Brjóstamiðstöðvar.
Við leggjum mikla áherslu á teymisvinnu og uppbyggingu mannauðs með það í huga að byggja upp skemmtilegan vinnustað með möguleika á að taka þátt í daglegri umbótavinnu samhliða hefðbundnum störfum. Lögð er rík áhersla á jákvæðni, fagmennsku og virðingu gagnvart skjólstæðingum og samstarfsfólki.
Vinnustaðurinn og staðsetningin er heldur ekki af verri endanum. Brjóstamiðstöð er staðsett á 3. og 4. hæð við Eiríksgötu 5, í hjarta Reykjavíkur þar sem útsýnið fangar mann á hverjum degi.
Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
Helstu verkefni og ábyrgð
Lífsmarkamælingar og skráning
Umsjón með lager deildar og áfyllingar
Aðstoð í símaþjónustu deildar
Upplýsingagjöf og samskipti við sjúklinga, starfsfólk og stofnanir
Önnur verkefni í samráði við yfirmann
Hæfniskröfur
Framhaldsskólapróf
Jákvætt viðmót, þjónustulipurð og samskiptahæfni
Skipulögð og nákvæm vinnubrögð
Hæfni og geta til að starfa í teymi
Góð íslensku- og enskukunnátta
Stundvísi og áreiðanleiki
Reynsla af umönnunarstörfum er kostur
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, skrifstofumaður, heilbrigðisritari, skrifstofustörf, móttaka
Tungumálahæfni: íslenska 4/5, enska 3/5
Staðsetning: Eiríksgata 5, 101 Reykjavík
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 04.05.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Sérhæfður starfsmaður á brjóstamiðstöð
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
16.04.2026
Umsóknarfrestur
04.05.2026