Þjónustuaðili
Fangelsismálastofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Félagsráðgjafi - Meðferðarsvið Fangelsismálastofnunar
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
07.04.2026
Umsóknarfrestur
21.04.2026
Félagsráðgjafi - Meðferðarsvið Fangelsismálastofnunar
Langar þig að starfa þar sem þú hefur raunveruleg áhrif á fólk og samfélagið í heild?
Fangelsismálastofnun leitar að framsýnum og lausnarmiðuðum félagsráðgjafa í öflugt og faglegt teymi á meðferðarsviði.
Á sviðinu starfa félagsráðgjafar, sálfræðingar og vímuefnaráðgjafar í nánu samstarfi við annað starfsfólk fangelsa og heilbrigðisstarfsfólk.
Lögð er áhersla á þverfaglega teymisvinnu, fagmennsku og mannlega nálgun í endurhæfingu.
Helstu verkefni og ábyrgð
Veita félagslega ráðgjöf og stuðning
Halda einstaklingsviðtöl og hópafræðslu
Framkvæma innkomumöt og móta einstaklingsáætlanir
Styðja við afplánunarferli og endurkomu í samfélagið
Vinna í samstarfi við aðrar stofnanir og þjónustuaðila
Veita fræðslu og handleiðslu til starfsfólks
Taka þátt í þróunar- og umbótaverkefnum, bæði innlendum og erlendum
Hæfniskröfur
Íslenskt starfsleyfi félagsráðgjafa
Þekking og reynsla af starfi sem félagsráðgjafi er æskilegt
Þekking og reynsla á sviði réttarfélagsráðgjafar er kostur
Sjálfstæð vinnubrögð, skipulagshæfileikar og lausnamiðuð nálgun er mikilvæg
Góð tölvufærni
Reynsla af áhugahvetjandi samtalstækni (MI)
Þekking á áhættumati, hugrænni atferlismeðferð, hvatningsviðtalstækni (MI) og áfallamiðaðri nálgun er æskileg
Ástríða fyrir þróun úrræða sem styðja við endurhæfingu og samfélagslega aðlögun skjólstæðinga
Þekking eða reynsla af vinnu með fólki með fjölþættan vanda er mikilvæg
Góð samskiptafærni og teymisvinna
Góð íslensku og enskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félagsráðgjafafélag Íslands hafa gert.
Vinnustaðurinn er fjölskylduvænn og er meðal annars boðið upp á fulla styttingu vinnuvikunnar, og skemmtilegt starfsmannafélag í krefjandi en lifandi starfsumhverfi.
Fangelsismálastofnun rekur fjögur fangelsi; Fangelsin á Hólmsheiði og á Litla-Hrauni sem eru lokuð fangelsi og Fangelsið Sogni og Kvíabryggju sem eru opin fangelsi.
Starfsfólk meðferðarsviðs er með starfsstöð á skrifstofu Fangelsismálastofnunar en starfið fer að miklu leyti fram í fangelsum.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Fangelsismálastofnunar við ráðningar.
Fangelsismálastofnun hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt Jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012.
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 21.04.2026
Nánari upplýsingar veitir
Karen Dröfn Hafþórsdóttir
Tölvupóstur: karen.hafthorsdottir@fangelsi.is
Þjónustuaðili
Fangelsismálastofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Félagsráðgjafi - Meðferðarsvið Fangelsismálastofnunar
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
07.04.2026
Umsóknarfrestur
21.04.2026