Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Fjölbrauta­skóli Suður­nesja

Upplýsingar um starf

Starf

Framhaldsskólakennari í upplýsingatækni og tölvufræði

Staðsetning

Suðurnes

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

07.04.2026

Umsóknarfrestur

20.04.2026

Framhaldsskólakennari í upplýsingatækni og tölvufræði

Fjölbrautaskóli Suðurnesja óskar eftir að ráða framhaldsskólakennara í upplýsingatækni og tölvufræði. Um fullt starf er að ræða. Ráðningartími er frá upphafsdegi ráðningar en ráðið er í stöðuna frá 1.08.26.

Helstu verkefni og ábyrgð

Viðkomandi sinnir kennslu en í því felst að kenna, undirbúa kennslu, og meta nám í kennslugrein sinni samkvæmt markmiðum aðal- og skólanámskrár. Gerir námsáætlun, viðheldur faglegri hæfni sinni og hugar að tengslum við aðrar námsgreinar. Tekur þátt í samráði vegna starfs síns, ber ábyrgð á almennri upplýsingagjöf, situr kennarafundi og vinnur önnur störf sem honum eru falin og samrýmast gildandi kjarasamningum, lögum og reglugerðum.

Hæfniskröfur

Umsækjandi uppfyllir kröfur um menntun og hæfni samkvæmt lögum nr. 95/2019.

Kennsluréttindi á framhaldsskólastigi og menntun í viðkomandi fagi.

Kennslureynsla á framhaldsskólastigi er æskileg.

Faglegur metnaður, frumkvæði, öguð vinnubrögð og jákvætt hugarfar.

Þarf að hafa þekkingu á bæði Microsoft og Apple tölvuumhverfi.

Mjög góð samskiptahæfni, ríkur samstarfsvilji og viðkomandi þarf að falla að þeim starfsmannahópi sem fyrir er í skólanum.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kennarasamband Íslands hafa gert.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi ríkissjóðs og KÍ skv. nánari útfærslu í stofnanasamningi skólans.

Umsóknum skal skilað rafrænt í gegnum Starfatorg (www.starfatorg.is) með tilheyrandi fylgigögnum. Í umsókn þurfa að koma fram upplýsingar um menntun (staðfest afrit af prófskírteinum), afrit af leyfisbréfi til að nota starfsheitið kennari, upplýsingar um fyrri störf og tilgreina skal meðmælendur. Ákvörðun um ráðningu byggir á innsendum gögnum og viðtölum.

Tekið skal fram að skv. 4. mgr. 8. gr. laga framhaldsskóla nr. 92/2008 er óheimilt að ráða einstakling til starfa við framhaldsskóla sem hlotið hefur refsidóm fyrir brot á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga. Áður en til ráðningar kemur þarf að liggja fyrir hreint sakavottorð.

Á heimasíðu skólans, www.fss.is, má finna frekari upplýsingar og sjá myndir úr skólalífinu.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 20.04.2026

Nánari upplýsingar veitir

Kristján Pétur Ásmundsson

skólameistari

Tölvupóstur: kras@fss.is

Sími: 421 3100

Guðlaug Málfríður Pálsdóttir

aðstoðarskólameisstari

Tölvupóstur: gudlaug.palsdottir@fss.is

Sími: 421 3100

Þjónustuaðili

Fjölbrauta­skóli Suður­nesja

Upplýsingar um starf

Starf

Framhaldsskólakennari í upplýsingatækni og tölvufræði

Staðsetning

Suðurnes

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

07.04.2026

Umsóknarfrestur

20.04.2026