Þjónustuaðili
Lögreglustjórinn á Suðurlandi
Upplýsingar um starf
Starf
Skrifstofumaður í framlínu
Staðsetning
Óstaðbundið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
03.04.2026
Umsóknarfrestur
21.04.2026
Skrifstofumaður í framlínu
Embætti lögreglustjórans á Suðurlandi er framsækinn og vaxandi vinnustaður með öflugan mannauð og fjölbreytt verkefni. Hjá embættinu starfa rúmlega 100 starfsmenn á fimm starfsstöðvum en umdæmið er víðfeðmasta lögregluumdæmi landsins.
Framlína sinnir allri almennri þjónustu við viðskiptavini embættis lögreglustjórans á Suðurlandi og annast stoðþjónustu við önnur svið og deildir embættisins og úrvinnslu erinda. Starfið heyrir undir skrifstofu lögreglustjóra en valkostir um starfsstöð eru á Höfn í Hornafirði, Kirkjubæjarklaustri, Vík í Mýrdal, Hvolsvelli eða Selfossi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Skrifstofumaður í framlínu ber ábyrgð á að þjónusta viðskiptavini, svara fyrirspurnum, greina erindi og leysa úr verkefnum í samræmi við verkstjórn þjónustustjóra framlínu. Starfsmaður ber ábyrgð á að sinna að kostgæfni þeim verkefnum sem honum eru falin á hverjum tíma, hlutverk og stefnu embættis lögreglustjórans á Suðurlandi.
Skrifstofumaður í framlínu sinnir upplýsingagjöf í almennri afgreiðslu embættisins, afgreiðslu stjórnsýsluerinda ásamt innri þjónustu, s.s. skönnun og frágang skjala, móttöku pósts og trúnaðargagna sem send eru með tæknilega öruggum hætti.
Hæfniskröfur
Skrifstofumaður skal búa yfir hæfni á 2. þrepi skv. íslenska hæfnirammanum, getur starfað með öðrum og tekið frumkvæði í samskiptum.
Reynsla af þjónustustörfum er æskileg.
Jákvæðni, kurteisi og lipurð í mannlegum samskiptum er nauðsynlegur eiginleiki auk álagsþols, þolinmæli og þrautseigju.
Skrifstofumaður þarf að búa yfir framúrskarandi þjónustulund, getu til að sýna nákvæmni í vinnubrögðum og geta borið ábyrgð á skilgreindum verkþáttum.
Almenn tölvukunnátta og góð færni í ritvinnslu er skilyrði.
Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti er skilyrði og pólskukunnátta er kostur.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.
Kveðið er á um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna í lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.
Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur verða ekki teknar til greina.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningur liggur fyrir. Öll kyn eru hvött til að sækja um starfið.
Umsækjendur þurfa að geta hafið störf 1. júní 2026. Sótt er um starfið rafrænt hér að neðan.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 21.04.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þjónustuaðili
Lögreglustjórinn á Suðurlandi
Upplýsingar um starf
Starf
Skrifstofumaður í framlínu
Staðsetning
Óstaðbundið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
03.04.2026
Umsóknarfrestur
21.04.2026