Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Náttúru­vernd­ar­stofnun

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðingur í þjónustu og miðlun

Staðsetning

Austurland

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

01.04.2026

Umsóknarfrestur

21.04.2026

Sérfræðingur í þjónustu og miðlun

Náttúruverndarstofnun óskar eftir að ráða jákvæðan og þjónustulundaðan einstakling til að hafa umsjón með þjónustu við gesti Vatnajökulsþjóðgarðs sem heimsækja Snæfellsstofu á Skriðuklaustri. Starfið er fjölbreytt og áhugavert og felst meðal annars í umsjón með daglegum rekstri Snæfellsstofu, fræðslu, miðlun og móttöku gesta.

Sérfræðingurinn heyrir beint undir þjóðgarðsvörð austursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs og hefur starfsaðstöðu í Snæfellsstofu og á Egilsstöðum. Um áhugavert heilsársstarf er að ræða.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Daglegur rekstur og umsjón Snæfellsstofu

  • Umsjón með minjagripasölu og uppgjöri

  • Þjálfun og dagleg umsjón með starfsfólki í Snæfellsstofu

  • Móttaka gesta og viðburðastjórnun

  • Samskipti við hagsmunaaðila

  • Gerð og miðlun fræðslu- og upplýsingaefnis og samstarf þvert á stofnunina

  • Umsjón fræðslusýningar

  • Umsjón með samfélagsmiðlum og markaðsetningu Snæfellsstofu og austursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs

  • Önnur tilfallandi verkefni.

Hæfniskröfur

  • Menntun sem nýtist í starfi

  • Reynsla eða þekking á fræðslu-, margmiðlunar- og/eða markaðsmálum er kostur

  • Jákvæðni og lausnamiðuð hugsun

  • Góð samskiptafærni og þjónustulund

  • Gott skipulag og geta til að fylgja málum eftir

  • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi

  • Reynsla af landvörslu er kostur

  • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti

  • Þekking, reynsla og áhugi á umhverfismálum, náttúrufræði og útivist er kostur

  • Góð staðþekking er kostur

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Um er að ræða 100% starf. Unnið er í dagvinnu auk helgarvinnu stöku sinnum.

Vinsamlegast látið ferliskrá og kynningarbréf þar sem færð eru rök fyrir hæfni í starfið fylgja með umsókninni.

Umsóknarfrestur er til og með 21. apríl.Við hvetjum áhugasöm til að sækja um óháð kyni og uppruna.Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu verður tekin.

Um Náttúruverndarstofnun:

Stofnunin hefur víðtækt hlutverk í náttúruvernd, sjálfbærri þróun og vernd friðlýstra svæða ásamt umsjón með villtum dýrum og veiðistjórnun. Markmið hennar er að tryggja að náttúra Íslands njóti verndar til framtíðar. Hjá Náttúruverndarstofnun starfar samheldinn hópur starfsfólks með fjölbreytta reynslu, sem sinnir margvíslegum verkefnum tengdum náttúruvernd og þjónustu við gesti þjóðgarða og annarra friðlýstra svæða. Starfsstöðvar stofnunarinnar eru 16 talsins um allt land.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 21.04.2026

Nánari upplýsingar veitir

Ragna Fanney Jóhannsdóttir

Þjóðgarðsvörður/Svæðisstjóri

Tölvupóstur: ragna.f.johannsdottir@nattura.is

Þjónustuaðili

Náttúru­vernd­ar­stofnun

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðingur í þjónustu og miðlun

Staðsetning

Austurland

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

01.04.2026

Umsóknarfrestur

21.04.2026