Þjónustuaðili
Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra
Upplýsingar um starf
Starf
Löglærður fulltrúi
Staðsetning
Norðurland vestra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
07.04.2026
Umsóknarfrestur
17.04.2026
Löglærður fulltrúi
Staða löglærðs fulltrúa við sýslumannsembættið á Norðurlandi vestra er laus til umsóknar. Starfsstöð er á Sauðárkróki. Um er að ræða ótímabundna ráðningu með 9 mánaða reynslutíma. Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf þann 1. júní nk. eða því sem næst.
Helstu verkefni og ábyrgð
Aðallega er um að ræða verkefni á sviði dánarbúa, leyfisveitinga og þinglýsinga, auk annarra tilfallandi verkefna á starfssviði embættisins. Starfið felst í afgreiðslu mála á tilgreindum sviðum, þátttöku í skipulagningu og aðlögun verkefna, móttöku viðskiptavina og daglegum leiðbeiningum vegna lögfræðisviðs, leiðsögn til starfsmanna, o.fl. Í boði er áhugavert og fjölbreytt starf innan stofnunar í stöðugri þróun. Starfið krefst ríklegrar samstarfshæfni og getu til að sýna frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
Hæfniskröfur
Embættis- eða bakkalár- og meistarapróf í lögfræði, auk annarra skilyrða 2. mgr. 3. gr. sbr. 2. ml. 2. mgr. 5. gr. l. nr. 50/2014
Geta til að vinna sjálfstætt og sýna frumkvæði í starfi er skilyrði
Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum, jákvætt viðmót og samvinnufærni er skilyrði
Starfsreynsla sem nýtist í starfi er kostur
Þekking á verkefnum sýslumanna og opinberri stjórnsýslu er kostur
Nákvæmni og ögun í vinnubrögðum
Mjög góð tölvukunnátta
Mjög gott vald á íslensku og ensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti
Almenn ökuréttindi
Við leitum að áreiðanlegum starfsmanni til liðs við lögfræðisvið embættisins. Horft verður til þess að umsækjandi falli sem best að þörfum starfsstöðvarinnar og embættisins í heild.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Stéttarfélag lögfræðinga hafa gert.
Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra er framsækin stjórnsýslu- og þjónustustofnun sem fer með framkvæmdarvald ríkisins innan umdæmis síns auk þess að sinna umfangsmiklum innheimtuverkefnum á landsvísu.
Umsókn um starfið skal fylgja afrit prófskírteina, ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf. Í umsóknargögnum skal gerð grein fyrir ástæðum umsóknar og rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið ásamt upplýsingum um meðmælendur, auk annarra atriða sem máli kunna að skipta. Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs og viðkomandi stéttarfélags.
Nýlega útskrifaðir jafnt sem reynslumiklir lögfræðingar eru hvattir til að sækja um. Við ráðningu verður tekið mið af jafnréttisáætlun embættisins og verður öllum umsóknum svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Athygli er vakin á því að umsóknir munu gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út með vísan til 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 464/1996 um auglýsingar á lausum störfum, með síðari breytingum, sbr. 2. mgr. 7. gr. laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 17.04.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þjónustuaðili
Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra
Upplýsingar um starf
Starf
Löglærður fulltrúi
Staðsetning
Norðurland vestra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
07.04.2026
Umsóknarfrestur
17.04.2026